Innlent | mbl | 9.3.2026 | 10:44 Ísland gegnir forystuhlutverki Mennta- og barnamálaráðuneytið átti frumkvæði að gerð alþjóðastaðals um barnahús. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Ísland mun gegna forystuhlutverki við gerð fyrstu alþjóðastaðla um réttindi barna. Þeir munu gera ríkjum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, stofnunum og hagsmunasamtökum kleift að færa réttindi barna úr yfirlýsingum og lagaramma yfir í raunverulegar, rekjanlegar og mælanlegar aðgerðir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, en þar segir jafnframt að ráðuneytið hafi átt frumkvæði og leitt vinnu við gerð alþjóðastaðals um Barnahús, sem rekin eru víða um heim að íslenskri fyrirmynd. Mannréttindi viðurkennd verkfæri Staðlarnir verða gefnir út af alþjóðlegu staðlasamtökunum ISO, en frumkvæði mennta- og barnamálaráðuneytisins mun hafa leitt til þess að Ísland mun á komandi misserum taka forystu í stöðlun um réttindi barna í nýrri tækninefnd alþjóðlegu staðlasamtakanna. Með því verði mannréttindi í fyrsta sinn skrifuð inn í viðurkennd alþjóðleg verkfæri og verði þannig markvisst viðfang stjórnunar. „Þrátt fyrir víðtæka fullgildingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna hefur framkvæmd hans víða verið ósamræmd og skort hefur á kerfisbundnum, mælanlegum og stöðluðum aðferðum til innleiðingar. Markmið íslenskra stjórnvalda er að skapa alþjóðlegan vettvang innan ISO til að styðja við samræmda framkvæmd réttinda barna,“ segir í tilkynningunni. Áhugi á þátttöku í nefndinni sé mikill og þegar hafi 45 af 175 aðildarlöndum ISO, eða um 25% allra meðlima, lýst yfir vilja til að taka þátt í gerð nýrra staðla á sviði barnaréttar. Þá hafi margar alþjóðastofnanir og samtök lýst vilja til þátttöku í nefndinni. Styrkir innleiðingu á réttindum barna Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir markmiðið að réttindi barna endurspeglist í raunverulegri framkvæmd og ákvörðunum. „Ísland er stolt af formennsku sinni í tækninefndinni í gegnum Staðlaráð Íslands. Með því að leiða saman stjórnvöld, sérfræðinga og borgaralegt samfélag styrkir þetta frumkvæði innleiðingu á réttindum barna á heimsvísu,“ er haft eftir henni. Formaður hinnar nýju tækninefndar er Páll Magnússon, sendiráðunautur í fastanefnd Íslands í Genf, sem jafnframt gegndi lykilhlutverki í gerð alþjóðastaðals um Barnahús. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Lakers komið á mikið flug Vilja rannsókn á snjóflóðunum Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ísland gegnir forystuhlutverki Rauð kauphöll í byrjun dags Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndir: Hvalreki í Kjálkafirði Ótvíræður réttur barna brotinn Feimni við að leggja fyrir heimanám Nýr leiðtogi endist ekki án samþykkis Trumps Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Hitafundur í þinginu í dag Missti tönnina á gatnamótunum Minni væntingar, minni árangur Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Lakers komið á mikið flug Vilja rannsókn á snjóflóðunum Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ísland gegnir forystuhlutverki Rauð kauphöll í byrjun dags Umræðan Um hvað á að semja? Blekkingaleikurinn mikli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hver er Mojtaba Khamenei? Munu ekki ráðast á olíuiðnað Íran Mojtaba Khamenei nýr leiðtogi Íran Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Mest lesið Í gær Í vikunni Alltof margir fengið rangar rukkanir Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Kröfur til nemenda á undanhaldi Feimni við að leggja fyrir heimanám Legurýmin standa enn ónotuð í Ármúla Hitafundur í þinginu í dag Missti tönnina á gatnamótunum Minni væntingar, minni árangur Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Svikahrappar náðu milljarði Kastaði flugmiðanum í ruslafötuna Handtóku eftirlýstan mann í matvöruverslun 240 íslenskir læknanemar útskrifast Margir sækja í stuðlabergið Vesturlandsvegi lokað vegna umferðarslyss Fjórir fluttir á sjúkrahús eftir slysið Notre Dame-kirkja eins og nýbygging Niðurstöður sýna stórauknar innlagnir vegna áfengisneyslu Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason