Réttarhöld hefjast í dag yfir Ekrem Imamoglu, borgarstjóra Istanbúl í Tyrklandi. Hann hefur setið í fangelsi allt frá því hann var handtekinn 19. mars í fyrra fyrir ýmsar sakir, meðal annars spillingu og njósnir. Sama dag hafði hann verið útnefndur forsetaframbjóðandi stjórnarandstöðuflokksins CHP. Handtakan hefur verið harðlega gagnrýnd. Mannréttindavaktin og Amnesty International segja dómskerfinu beitt eins og vopni til þess að fjarlægja stjórnarandstæðinga og að grafið hafi verið undan sjálfstæði dómsvaldsins. Imamoglu er ekki eini sakborningurinn í réttarhöldunum. Þeir eru yfir 400. „Þessi fjöldaréttarhöld eru öfgafyllsta dæmi um vopnvæðingu tyrkneska dómskerfisins, en grafið hefur verið nær undan sjálfstæði þess,“ segir Dinushika Dissanayake, aðstoðarframkvæmdastjóri Amnesty í Evrópu í samtali við AFP fréttaveituna. 15 borgarstjórar á bak við lás og slá Allt frá því CHP vann afgerandi sigur á stjórnarflokknum AKP í sveitarstjórnarkosningum í mars 2024 hafa fimmtán borgarstjórar flokksins verið fangelsaðir. Imamoglu hefur verið talinn eini stjórnmálamaðurinn sem fær er um að sigra Recep Tayyip Erdogan, forseta Tyrklands, í kosningum sem fyrirhugaðar eru um mitt ár 2028. Stjórnmálaskýrendur telja nær öruggt að Imamoglu fái ekki að bjóða sig fram í næstu forsetakosningum. Jafnvel þótt hann yrði hreinsaður af sök þá er deilt um það fyrir dómi hvort háskólagráða hans sé gild en gerð er krafa um háskólamenntun forseta í stjórnarskrá landsins. Ákæruliðirnir í málinu á hendur Imamoglu eru 142. Ákæruvaldið vill að hann verði dæmdur í 2.430 ára fangelsi. Yfirvöld hafa bannað öll mótmæli innan eins kílómetra frá dómshúsinu. Stuðningsmenn Imamoglu söfnuðust saman í fjarska og veifuðu myndum af honum og öðrum borgarstjórum flokksins sem hafa verið handteknir.