Netkerfisfræðingurinn og varabæjarfulltrúinn Ólafur Ingi Óskarsson er nýr oddviti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ. Framboðslisti flokksins var samþykktur í heild sinni á félagsfundi síðdegis í dag. Annað sæti listans skipar Guðný Maja Riba, kennari og fráfarandi borgarfulltrúi. Í þriðja sæti er Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og náttúrufræðingur. „Það er mér mikill heiður að vera fyrirliði í svo flottu liði. En það er líka eins gott að Samfylkingin mæti sterk til leiks því það er mikið undir,“ er haft eftir Ólafi Inga, nýkjörnum oddvita, í fréttatilkynningu uppstillingarnefndar. Framboðslisti Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ í heild sinni: Ólafur Ingi Óskarsson, netkerfisfræðingur og formaður velferðanefndar Guðný Maja Riba, kennari og fráfarandi borgarfulltrúi Ómar Ingþórsson, landslagsarkitekt og náttúrufræðingur Auður Einarsdóttir, laganemi Guðlaugur Bjarki Lúðvíksson, verkfræðingur Elín Eiríksdóttir, sérkennari FMOS Sigurður Óli Karlsson, stjórnmálafræðinemi Viktoría Magnúsdóttir, háskólanemi Þórarinn Snorri Sigurgeirsson, skrifstofustjóri Þroskahjálpar Þóra Sigrún Kjartansdóttir, hársnyrtir Magnús Hlynur Haraldsson, framhaldsskólakennari Kristín María Ingimarsdóttir, kennari og hönnuður Kári Freyr Kane. stjórnmálafræðinemi Halla Halldórsdóttir, öryggis- og gæðastjóri Sjúkratrygginga Þyrnir Hálfdán Þyrnisson, nemi Þóra Hermannsdóttir Passauer, tækniteiknari Guðbjörn Sigvaldason, verslunarmaður Þórunn Ísfeld, eftirlaunakona Ragnar Gunnar Þórhallsson, baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks Kristín Sæunnar Sigurðardóttir, eftirlaunakona Jónas Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi og fyrrverandi formaður FAMOS Anna Sigríður Guðnadóttir, bæjarfulltrúi (heiðurssæti)