Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sameining geti aukið lífskjör íbúa á svæðinu

Read Full Article →

Oddviti Kaldrananeshrepps segir sameiningu við Árneshrepp geta aukið lífskjör íbúa á svæðinu. Kosið verður um sameiningu sveitarfélaganna tveggja á næstu vikum. Íbúar áhyggjufullir yfir að missa þjónustu og störf Íbúar Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, tveggja af fimm fámennustu sveitarfélögum landsins, funduðu með samstarfsnefnd í dag vegna fyrirhugaðra kosninga um sameiningu. Íbúafundur í Árneshreppi stóð yfir í á þriðja tíma. Gréta Sigríður Einarsdóttir, fréttamaður, var í beinni útsendingu frá Drangsnesi í kvöldfréttum sjónvarps. Hún sagði að íbúar hefðu spurt fjölda spurninga um kosti og galla sameiningar. Margir hefðu viðrað áhyggjur sínar af því að missa þjónustu, störf og völd yfir nærumhverfi sínu til stærsta þéttbýliskjarnans Drangsnes sem nú er í Kaldrananeshreppi. Finnur Ólafsson, oddviti Kaldraneshrepps, sagðist ánægður með það samtal sem hafi átt sér stað á íbúafundinum. „Við í samstarfsnefndinni vorum náttúrulega bara að kynna okkar álit og hvernig við sjáum hlutina fyrir okkur. Núna eftir skamma stund erum við að fara að kynna sama álit fyrir íbúunum í Kaldraneshreppi.“ Sameining auki lífskjör íbúa Finnur segir að þrátt fyrir að nefndin sé búin að vera að störfum í stuttan tíma hafi viðræður milli sveitarfélaganna tveggja staðið lengur yfir. „Við lítum á það sem okkar meginmarkmið í allri okkar vinnu sem sveitarstjórnarfulltrúar að bæta hag okkar íbúa. Hvort sem það er hvort fyrir sig eða sameiginlega. Og það er álit samstarfsnefndarinnar að við náum að auka lífskjör íbúa í sameiginlegu sveitarfélagi með þessari sameiningu.“ Breytir það einhverju að nú sé ekki lengur krafist þess að það sé lágmarksíbúafjöldi í sveitarfélagi? „Við vorum alltaf undir þeim mörkum sem þegar voru sett fram. En það breytir ekki okkar vinnu þegar við erum farin af stað í þetta verkefni að þá klárum við þetta verkefni. Þetta endar í kosningu núna á milli 14. mars og 28. mars, þá kemur upp úr kjörkössunum vilji íbúa og við vinnum eftir viljanum.“ Finnur segir lykilatriði og grunnskilyrði í samskiptum við stjórnvöld að svæðið fái þær samgöngubætur sem það á rétt á. „Það er búið að vera inni í samgönguáætlun alltof alltof alltof lengi vegbætur norður í Árneshrepp sem hafa dregist og við sjáum ekki hvenær þær verða. Og það er bara lykilkrafa okkar, hvort sem við sameinumst eða ekki, að þarna verði gerðar heilsárssamgöngur sem eru manni bjóðandi.“ Kosið verður um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps á Vestfjörðum á næstu vikum. Oddviti Kaldrananeshrepps, sem setið hefur í samstarfsnefnd um sameiningu, segir sameiningu geta aukið lífskjör íbúa á svæðinu.

Share this article