Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvað er slysatrygging við heimilisstörf?

  • What: Information about accident insurance for home work
  • Impact: General insurance information, not security-related
Read Full Article →

Skilafrestur skattframtals fyrir síðasta ár rennur út í lok þessarar viku. Til að forðast mistök er best að ígrunda vel hvern reit í framtalinu áður en því er skilað. Einn reit á forsíðu framtalsins haka þó eflaust margir við, eða haka ekki við, án þess að gefa honum mikinn gaum. Það er reiturinn um slysatryggingar við heimilisstörf. „Með því að merkja í þennan reit tryggir framteljandi sér rétt til slysabóta almannatrygginga vegna slysa við heimilisstörf, en það er sami réttur og vegna vinnuslysa,“ segir á vef Skattsins. Slysabætur almannatrygginga eru: slysadagpeningar, greiðsla sjúkrakostnaðar eftir ákveðnum reglum, örorkubætur ef slysið leiðir til örorku og dánarbætur ef slysið veldur dauða innan tveggja ára frá því það varð. Iðgjald vegna tryggingarinnar er 550 krónur árið 2026 og er innheimt ásamt opinberum gjöldum. Til hvaða heimilisstarfa nær tryggingin? Samkvæmt lögum um slysatryggingar almannatrygginga geta þeir sem stunda heimilisstörf tryggt sér rétt til slysabóta við þau störf með því að skrá ósk þar að lútandi í skattframtal í byrjun hvers árs. Samkvæmt lögunum er ráðherra svo heimilt með reglugerð að skilgreina nánar hvað telst til heimilisstarfa. Í reglugerð heilbrigðisráðherra um slysatryggingu við heimilisstörf segir að til heimilisstarfa teljist meðal annars eftirtalin störf, séu þau ekki liður í atvinnustarfsemi hins tryggða: Hefðbundin heimilisstörf, svo sem matseld og þrif. Umönnun sjúkra, aldraðra og barna. Viðhaldsverkefni og viðgerðir. Hefðbundin garðyrkjustörf. Undanskilin slysatryggingu við heimilisstörf eru meðal annars: Slys sem hinn tryggði verður fyrir við ýmsar persónulegar daglegar athafnir sem ekki teljast til hefðbundinna heimilisstarfa, svo sem að klæða sig, baða og borða. Slys sem hinn tryggði verður fyrir á ferðalögum, svo sem í tjaldi, hjólhýsi og á hóteli. Skilafrestur skattframtalsins er 13. mars. Þær breytingar voru gerðar á skilum skattframtals í ár að ekki er hægt að sækja um frest. Í samtali við fréttastofu sagði Helga Lilja Aðalsteinsdóttir, deildarstjóri hjá Skattinum, að nái fólk ekki að skila áður en frestur renni út sé það einfaldlega hvatt til að skila sem fyrst til að komast hjá því að skattur sé áætlaður. Slysatrygging vegna heimilisstarfa gildirfrá 1. júní á framtalsári til 31. maí næsta árs á eftir. Tryggingin gildir því aðeins ef framtali er skilað á réttum tíma, samkvæmt leiðbeiningavef Skattsins.

Share this article