Skólastjóri í Víðisstaðaskóla í Hafnarfirði hverfur til annarra starfa fyrir bæinn eftir að tæplega fjögurra milljón króna úttekt var gerð á stjórnunarháttum í skólanum í kjölfar alvarlegra ábendinga frá starfsfólki í nóvember. Þetta kemuri fram í skriflegu svari frá samskiptastjóra Hafnarfjarðar við fyrirspurn fréttastofu. Vísir greindi frá því í nóvember að Dagný Kristinsdóttir skólastjóri hefði verið send í leyfi á meðan úttekt yrði gerð á stjórnunarháttum í Víðisstaðaskóla. Í frétt Vísis er rifjað upp þegar 22 starfsmenn í Hvassaleitisskóla í Reykjavík skrifuðu undir vantraustsyfirlýsingu á hendur Dagnýju, þáverandi skólastjóra, í nóvember 2022. Dagný sagði upp störfum Hvassaleitisskóla skömmu síðar. Í svari við fyrirspurn fréttastofu vegna málsins segir að úttekt Lífs og sálar á stjórnendum Víðistaðaskóla hafi kostað bæinn rúmar 3,9 milljónir króna. Þar segir jafnframt að auglýst verði eftir nýjum skólastjóra á næstu dögum, Guðbjörg Norðfjörð, sem tók við starfi skólastjóra þegar Dagný fór í leyfi, stýri skólanum út skólaárið. „Fyrri skólastjóri tekur við öðru starfi hjá Hafnarfjarðarbæ. Ekki er hægt að upplýsa hvaða fyrr en sú ráðstöfun hefur verið kynnt fyrir öllum hlutaðeigandi.“