Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Óttaðist um líf sitt eftir að hafa verið rænd á Tene en framlengdi samt ferðina

  • What: A woman was sexually assaulted in Tenerife
  • Impact: Local authorities are investigating reports of similar incidents
Read Full Article →

Íslensk kona sem var rænd á Tenerife segist hafa óttast um líf sitt. Maður réðst á hana úti á götu og reif af henni hálsfesti. Hún ákvað að kæra málið ekki til lögreglu. Fréttastofa hefur fengið ábendingar um fleiri dæmi þar sem fólk lýsir því að hafa verið rænt með svipuðum hætti á Tenerife. Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur ekki fengið upplýsingar um slík atvik. Reif af henni hálsmen og hljóp í burtu Brynja Baugsdóttir er á Los Cristianos á Tenerife í fríi með frænkum sínum. Hún deildi reynslu sinni á samfélagsmiðlinum TikTok . Brynja segir atvikið hafa átt sér stað um kvöldmatarleytið á sunnudag. Þá hafi enn verið bjart. Hún hafi verið að fara að hitta frænkur sínar þegar hún mætti tveimur mönnum á göngugötu. Þeir hafi gengið fram hjá en annar síðan heilsað henni. „Svo bara stekkur hann á mig. Þetta gerist svo hratt en tilfinningin sem ég fékk, það voru ótrúlega margar hugsanir; hann er að djóka í mér, hann ætlar að bregða mér. Svo allt í einu fékk ég nei, heyrðu hann er að fara að drepa mig, hann er að fara að kýla mig því hann er með höndina svona fram.“ Brynja segir manninn hafa veist að henni og tekið hálsfesti sem hún var með um hálsinn. Peysan hennar hafi rifnað við þetta. Áður en hún vissi af hafi hann hlaupið í burtu. Hún segist ekki hafa áttað sig strax á hvað gerðist, heldur átt erfitt með andardrátt og farið að gráta. Hún hljóp upp að fólki sem sat á bar í nágrenninu. „Fyrsta fólkið sem ég tala við eru Íslendingar, ótrúlega fyndið. Þau sáu hann hlaupa, þau sáu eitthvað gerast út undan sér en föttuðu ekki að ég hefði verið rænd fyrr en ég kom grátandi til þeirra.“ „Ég ætla ekki að láta þetta atvik skemma allt fyrir mér“ Brynja segist áður hafa verið rænd af vasaþjófum. Þá hafi símanum hennar verið stolið. Þetta hafi verið öðruvísi. „Það var náttúrulega óþægilegt og allt það en það er ekki þetta áfall af því að hann veittist svo að mér. Ég var svo ótrúlega hrædd um líf mitt í smá stund. Og ég var alltaf að sjá hann aftur. Ég sé hann endalaust stökkva á mig aftur og aftur. Þú veist, hugsunin fer ekki. Og ég hugsa að ef ég myndi sjá andlitið hans, ég myndi þekkja það því ég náði því svo vel.“ Hana langaði ekki að hringja á lögregluna eftir atvikið en barþjónninn á barnum hafi verið harður á því. Þeir hafi hringt í lögregluna en hún hafi ekki getað komið vegna anna. Karnival er í gangi á eyjunni núna og Brynja segir lögregluna hafa nóg að gera. Henni hafi verið ráðlagt að fara á lögreglustöðina á Las Americas og tilkynna málið. „Mögulega væri það gott og allt það til þess að hafa skráningar utan um þetta. En mér finnst þetta bara svo óþægilegt og mig langar ekki að gera meira mál úr þessu. Ég er ekki að fara að reyna að hafa upp á þessari festi með tryggingum eða neitt. Mig langar bara að mér líði vel og að ég jafni mig andlega frekar en eitthvað annað.“ Brynja segist ekki hafa viljað fara fyrr heim eftir atvikið. „Nefninlega alls ekki, ég meira segja lengdi ferðina mína út af því að mig langar að líða vel og njóta og ég ætla ekki að láta þetta atvik skemma allt fyrir mér. Mig langar bara að halda áfram. Ég er auðvitað vör um mig, ég passa mig með hlutina, reyni að hafa símann innan á mér en ekki utan á mér. Maður hefur virkilega hugsað og ég labba ekki þessa götu aftur. Í gær var ég aftur að labba ein seinni partinn og þá bara fann ég fólk sem ég labbaði nálægt þannig að ég var ekki ein. Mig langar að halda áfram.“

Share this article