- What: Boeing delays 737 MAX deliveries due to electrical issues
- Impact: Affects aircraft production and delivery schedules
Boeing tilkynnti í dag að fyrirtækið neyðist til að fresta afhendingu nokkurra Boeing 737 MAX-véla eftir að hafa uppgötvað rispaðar raflagnir í nokkrum flugvélum sem til stóð að afhenda. Á vef WSJ segir að vandamálið megi rekja til vélrænnar bilunar en Boeing hefur ekki viljað tjá sig frekar um málið og hefur ekki tilgreint hversu margar flugvélar hafa orðið fyrir áhrifum. Talskona frá flugvélaframleiðandanum segir að viðgerðirnar gætu tekið nokkra daga á hverja flugvél. Tafirnar gætu haft áhrif á heildarafhendingar flugvéla í þessum mánuði en Boeing hyggst halda við markmið sitt um að afhenda 500 MAX-flugvélar á þessu ári. Sjá einnig Boeing vinnur að arftaka 737 MAX Kelly Ortberg, forstjóri Boeing, sagði á síðasta ári að fyrirtækið hefði náð árangri í gæðaeftirlitsmálum og að fyrirtækið væri að undirbúa sig að flýta framleiðslu.