Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega

Read Full Article →

Innlent | Spursmál | mbl | 10.3.2026 | 21:00 Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega Setja bókamerki Tengdar fréttir Spursmál Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja » Fleiri tengdar fréttir Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki ástæðu til að taka þau stjórnvöld alvarlega sem segjast ætla að berjast gegn verðbólgu en hækki svo laun starfsfólks um 11% á sama tíma. Þetta kemur fram í viðtali við Bjarna á vettvangi Spursmála þar sem staðan á vinnumarkaði er vegin og metin. Segist hann enn vonast til þess að kjarasamningar muni halda í september næstkomandi þrátt fyrir ískyggilega háar verðbólgutölur. Frétt af mbl.is Verðbólgan stendur í stað þvert á spár Nefnir hann að stjórnvöld hafi auk þess ekki átt góðan leik með gjaldabreytingum um nýliðin áramót sem urðu innspýting á verðbólgu sem nú mælist 5,2% tvo mánuði í röð. Hann telur þó stöðuna á vinnumarkaði og einkum opinbera markaðnum vera miklu stærra vandamál sem þurfi að horfast í augu við. Hjálpar ekki Seðlabankanum „Þegar menn hækka launin um yfir 11% á einu ári þá er ekki hægt að taka menn alvarlega þegar þeir segjast ætla að vinna gegn verðbólgu. Það er ekki hægt að halda því fram að það hjálpi Seðlabankanum að ná tökum á verðbólgunni þegar laun eru hækkuð jafn mikið og þetta á jafn skömmum tíma.“ Segir hann að taka þurfi tillit til margar þátta í þessu en „Ég veit að þetta hefur eitthvað með taktinn í kjarasamningalotu að gera og svo framvegis. En þegar við skoðum launavísitölu og berum saman við kostnaðarmat kjarasamninga að við höfum ítrekað verið að fara langt fram úr. Þannig er því um vanda að ræða sem er alltof lítið í umræðunni. Menn beina sjónum að gjaldabreytingunum um áramótin sem ég tel að hafi verið mistök og alls ekki að hjálpa en hitt er miklu stærra vandamál og við veðrum að sjá skóginn fyrir trjánum, vita nákvæmlega hvar meinið liggur og það liggur í því að laun hafa hækkað alltof mikið, alltof lengi.“ Hann ítrekar í þessu sambandi að það sé ekki hækkun lægstu launa sem sé aðal orsakavaldurinn í þessari þróun. Frétt af mbl.is Forsendurnar riða til falls „Það þýðir ekki að kostnaðarmat samninganna hafi verið með þeim hætti að niðurstaðan varðandi láglaunahópa sé rótin að vandanum. Ég er ekki að segja að þeir sem voru að berjast fyrir hækkunum lægstu launa hafi haft rangt fyrir sér. Það verður hins vegar að horfast í augu við það að heildaráhrifin af kjarasamningunum og öðru því sem var að gerast í hagkerfinu hefur leitt til þessarar niðurstöðu og við erum öll að líða fyrir þetta.“ Ég hef spurst fyrir um það innan opinbera kerfisins og hvort forstöðumenn ríkisstofnana séu einfaldlega að skrúfa upp laun starfsmanna sinna langt umfram kjarasamninga. Þá er fullyrt í mín eyru og þú þekkir það sennilega manna best sem fjármálaráðherra til allra þessara ára, að kerfið sé einhvern veginn þannig upp byggt að kerfið fari bara á sjálfsstýringu í launatöflum og öðru þannig að þetta hækki í raun bara án þess að nokkur beri ábyrgð á því eða geti tekið í bremsuna? „Það á í sjálfu sér ekki að vera launaskrið hjá ríkinu, launaskrið eru hækkanir umfram kjarasamninga.“ 11% eru langt umfram kjarasamninga. „Já og þar voru að vísu inni mjög miklar hækkanir til kennara hjá sveitarstjórnum. En launaskrið hjá ríkinu er mál sem ég held að sé vanmetið sem vandamál í þessu öllu saman.“ Eftirlitið ekki nægt Getur verið að það sé kerfislægt frekar en annað? „Já ég óttast að það sé vegna of lítils eftirlits í kerfinu almennt séð. Ég held að uppgjörið gagnvart einstaka ríkisaðilum, svo maður beini sjónum sínum að ríkinu, uppgjörið sem gerist raunverulega á grundvelli fjárheimilda yfir ráðið það fer aldrei almennilega fram. Menn eru alltaf á harðahlaupum, eru með hlaupabrettið stillt á 17 og eru bara að reyna að koma saman næstu fjárlögum, og klára fjáraukann og svo er bara næsta fjármálaáætlun og svo eru menn bara á harðahlaupum og menn eru að horfa fram á við og enginn hefur almennilega tíma til að skoða hvað gerðist. Þetta á við um fjárlaganefnd sem nær ekki almennilega tökum á því að skoða og skilja hvað gerist innan ákveðinna ríkisstofnana og ríkisendurskoðandi er svona með breiðari strokurnar og í stærra samhengi hlutanna. Fagráðuneytin sem bera hina endanlegu ábyrgð á þessu í rammafjárlagagerð hafi of litla burði til að fara í þetta uppgjör almennilega og svo hentar það ekki alltaf pólitískt. Þannig að já ég held að kerfið sé of víða, að það skorti eftirlit og aðhald.“ Nefnir Bjarni ólíkt viðhorf milli landa varðandi mögulega framúrkeyrslu hjá hinu opinbera. „Bara sem dæmi að þegar lög um opinber fjármál voru sett á sínum tíma þá fóru menn til Svíþjóðar og spurðu spurningarinnar: hvað eigum við að gera þegar ríkisaðilar fara fram úr fjárheimildum? Svíarnir störðu bara til baka, um hvað ertu að tala? Hver er að tala um að það geti gerst?“ Viðtalið við Bjarna Benediktsson má sjá og heyra í heild sinni hér: Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. mbl.is/María Matthíasdóttir Tengdar fréttir Spursmál Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Lokun sundsins hefur mest áhrif á Kínverja » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tvö Íslendingalið í umspilið Chalamet gagnrýndur fyrir ummæli um óperu og ballett Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega Páskalakkrísinn er mættur til landsins Bandaríkin ráðast til atlögu vegna tundurdufla Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hart sótt að Kristrúnu Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Þorgerður Katrín: „Í guðanna bænum“ Fleiri muni fara á örorku Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Ósáttur við ummæli ráðherra Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Tvö Íslendingalið í umspilið Chalamet gagnrýndur fyrir ummæli um óperu og ballett Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega Páskalakkrísinn er mættur til landsins Bandaríkin ráðast til atlögu vegna tundurdufla Umræðan Bókin sem þú mátt ekki lesa Er leiðangurinn þess virði? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Ræða þarf alla kaflana á nýjan leik „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Bandaríkin ráðast til atlögu vegna tundurdufla Mest lesið Í gær Í vikunni Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Ósáttur við ummæli ráðherra Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Sagðist ætla að sprengja upp byggingu Þorgerður heldur til Washington Alltof margir fengið rangar rukkanir Missti tönnina á gatnamótunum Sá handtekni starfsmaður verktaka Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Myndir: Vorboðinn kominn óvenju snemma Bíll hafnaði ofan í tjörn í Lundi Farþegamiðstöðin komin með nafn Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Aukaþáttur: Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? Missti stjórn á bílnum vegna hálku Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair Svikahrappar náðu milljarði RÚV segir upp samningi við Sýn 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar

Share this article