Innlent | Spursmál | mbl | 11.3.2026 | 10:40 Evrópusambandið fylgi hótunum sínum ekki eftir Stefán E. Stefánsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ræða mál sem þau hafa áhuga á Skýrt umboð skiptir máli Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Ósamstiga um nægan meirihluta Hitnaði í kolunum vegna meintra MAGA-tengsla » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna #116. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? » Fleiri tengdar fréttir Þótt Evrópusambandið beiti aðildarríki sín þvingunaraðgerðum, fylgir sambandið því ekki eftir. Þetta segir Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar sem er gestur Spursmála ásamt Birni Inga Hrafnssyni, aðstoðarmanni formanns Miðflokksins. Þar takast þeir á um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu og hvort Ísland eigi erindi inn í Evrópusambandið. Skerst verulega í brýnu milli þeirra um ýmis mál og meðal annars hvort Samfylkingin hafi í raun haft það á stefnuskrá sinni fyrir síðustu alþingiskosningar að Ísland gengi í ESB. Orðaskiptin um þetta má sjá í spilaranum hér að ofan en þau eru einnig rakin í textanum hér að neðan. Klúbbur 27 ríkja „Hvað er Evrópusambandið? Klúbbur eins og staðan er í dag, 27 fullvalda ríkja. Hvaða tæki hefur Evrópusambandið til þess að beita aðildarríki sín þvingunum. Jú, með einhverjum ráðstöfunum innan Evrópusambandsins og um einhverja hluti sem snerta samvinnu þess. Til dæmis hvort að ríkin fá greidda styrki sem að Evrópusambandið hefur veitt þeim. Skilurðu mig? Það eru þvingunaraðgerðirnar. Það er enginn sem kemur…“ „Já eða dagssektir.“ „Já. Já. Það er bara eins og með hverja aðra þjóðréttarsamninga.“ „Ja þeir hóta Pólverjum og Ungverjum dagsektum ef þeir taka ekki á móti ákveðnum hluta hælisleitenda. “ „En hvaða lögga kemur til Varsjár eða Búdapest til þess að innheimta það þegar þeir borga ekki þær sektir. “ Hvar er löggan? „Þú ert að segja að Evrópusambandið sé að hóta einhverju sem að muni síðan ekki standa við. Þannig að ef Evrópusambandið hótar okkur þá eigum við að treysta því að löggan komi ekki til að innheimta það? “ „Þetta er einfaldlega þannig, Björn, að þetta er svona eins og með golfklúbbinn, ef að þú brýtur siðareglur golfklúbbsins, þá koma þeir ekki heim til þín og brjóta allt í eldhúsinu hjá þér.“ „Nei, en sko, ég fer í golfklúbbinn af því ég vil fara í golfklúbbinn af því þetta er gott fyrir mig. “ „Það væri nákvæmlega sama ástæða fyrir Íslendinga til að fara þarna inn.“ Talaðu fyrir sjálfan þig „Við Íslendingar viljum ekkert fara í Evrópusambandið. Ástæðan fyrir því... “ „Ja talaðu fyrir sjálfan þig. Skoðanakannanir sýna að það er alveg svona helmingur þjóðarinnar sem hefur áhuga á því að ganga í Evrópusambandið.“ „Já ég skal bara taka nokkur dæmi. Samtök iðnaðarins og Samtök atvinnulífsins voru að birta niðurstöður sinna félagsmanna núna, bara síðast í morgun, Samtök iðnaðarins, sem sýnir að meirihluti félagsmanna þeirra er andvígur inngöngu. Þetta eru samtökin, Magnús, sem keyrðu málið áfram hérna fyrir hálfum öðrum áratug.“ „Þetta er auðvitað rétt og auðvitað áhyggjumál.“ „Og bara í hlaðvarpsþætti hjá mér fyrir rúmu ári í aðdraganda kosninga voru Kristrún og Þorgerður Katrín hjá mér. Og Kristrún sagði, þetta er mál sem klýfur þjóðina. Við getum ekki farið með málið af stað þegar það klýfur þjóðina. Það þarf að eiga sér miklu meiri umræðu af stað innan atvinnulífsins og með launþegahreyfingarinnar og annað. Ekkert af þessu hefur verið gert. Það er einfaldlega þannig að Viðreisn hefur verið að pompa í skoðanakönnunum og þá kemur það viðbragð að hún segir: Við verðum að fá þetta hraðar heldur en til stóð. Og það stóð til að gera þetta árið 2027. Nú er verið að gera þetta með hraði síðsumars, af því að Viðreisn fór á taugum.“ Samfylkingin skýr í sínum málflutningi „Ég get ekki svarað fyrir þessa pólitík, þessara flokka sem þú nefnir þarna. Það er annað fólk í því. En í sjálfu sér þá er það þannig að Samfylkingin hefur ekkert farið í grafgötur með það hvaða stefnu hún hefur í Evrópumálum. Það var ekkert svo sem leyndarmál heldur.“ „Þeir tóku málið af dagskrá.“ „Fjölmiðlar túlkuðu það þannig að það væri tekið af dagskrá.“ „Nei það var formaðurinn sjálfur sem sagði það, Magnús.“ „Ég tók þátt í því að skrifa kosningastefnu Samfylkingarinnar á sínum tíma án þess að ég vilji gera endilega mikið úr mínum hlut þar, þá veit ég hvað stendur þar.“ „En var Samfylkingin mikið að auglýsa Evrópumálin…“ „Nei þetta var ekki forgangsatriði. Ég get alveg tekið undir það í kosningabaráttu Samfylkingarinnar fyrir síðustu alþingiskosningar. En hins vegar stóð þar í stefnunni að það væri stefnt að þjóðaratkvæðagreiðslu um málið á þessu kjörtímabili.“ Viðtalið við Magnús Árna og Björn Inga má sjá og heyra í heild sinni hér fyrir neðan: Tengdar fréttir Ísland og ESB Ræða mál sem þau hafa áhuga á Skýrt umboð skiptir máli Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Ósamstiga um nægan meirihluta Hitnaði í kolunum vegna meintra MAGA-tengsla » Fleiri tengdar fréttir Spursmál Ekki ástæða til að taka stjórnvöld alvarlega Ísland gæti verið komið inn í ESB 2030 Ekki víst hvernig Evrópusambandið bregst við Stakk upp á að geyma Evrópuumræðuna #116. - Er Ísland á leið inn í Evrópusambandið? » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Glys og glaumur í teiti ársins Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Handteknir vegna sprengingar Kínverskum ferðamönnum fjölgaði verulega Evrópusambandið fylgi hótunum sínum ekki eftir Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æðsti leiðtogi Írans heill á húfi Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Mest lesið Í gær Í vikunni Ósamstiga um nægan meirihluta Stúlkan er fundin Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Nýjast á mbl.is » Glys og glaumur í teiti ársins Erfið akstursskilyrði víða á heiðum Handteknir vegna sprengingar Kínverskum ferðamönnum fjölgaði verulega Evrópusambandið fylgi hótunum sínum ekki eftir Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína og þétting byggðar eru óráð Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æðsti leiðtogi Írans heill á húfi Skólastjórinn hættir alfarið Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Gátu ekki rökstutt þörf á gæsluvarðhaldi Mest lesið Í gær Í vikunni Ósamstiga um nægan meirihluta Stúlkan er fundin Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Kreppir að á tónleikamarkaði Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Hækkandi verð á áburði vegna stríðs Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Árni Árnason Óþægilegur grunur Snorra Mássonar