Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 11.3.2026 | 15:22 „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Sindri Snær Birgisson í Hæstarétti þegar málið var tekið fyrir í febrúar. Hvorugur sakborninganna mættu í dómssal í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson Urður Egilsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sindri mættur fyrir dóm » Fleiri tengdar fréttir „Þetta kemur ekkert algjörlega á óvart,“ segir Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari innt eftir fyrstu viðbrögðum við því að Hæstiréttur hafi ómerkt dóma í hryðjuverkamálinu svokallaða og vísað aftur til Landsréttar. Máli Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar er því ekki lokið í réttarkerfinu en þeir voru handteknir í september árið 2022 grunaðir um tilraun til hryðjuverka. Þeir voru síðan sýknaðir af ákæru þess efnis bæði í héraðsdómi og Landsrétti. Frétt af mbl.is Hryðjuverkamálið flutt fyrir Hæstarétti í dag „Það var galli á sönnunarmati, á sönnunargildi framburðar ákærðu. Það var ekki tekin afstaða til þess með hliðsjón af öllum gögnum málsins hvort þetta væru fullnægjandi skýringar sem þeir gáfu á öllum þessum ákæruliðum sem var talið sannað að þeir væru sekir um, en ekki fundir sekir um brotið,“ segir Sigríður, en blaðamaður náði tali af henni strax eftir niðurstaða lá fyrir. „Þá fannst þeim að það hefði ekki verið fjallað um þetta með fullnægjandi hætti. Breytingar á framburði frá því sem var í lögreglurannsókn til að mynda. Þetta er metið allt heildstætt að það hafi ekki verið gert með réttum hætti, að leggja mat á framburð ákærðu,“ segir Sigríður jafnframt, en allt málið verður tekið til meðferðar á ný fyrir Landsrétti. Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari í Hæstarétti í dag. mbl.is/Karítas Næstversti kosturinn Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, er staddur á Egilsstöðum en var að renna yfir dóminn er blaðamaður heyrði í honum. Hann segir að dómurinn sé það næstversta í stöðunni – sakfelling verandi sú versta. „Hæstiréttur telur að einhverjir hafi verið ágallar á munnlegum framburðum. Ég hafði ekkert séð það svo sem, en þeir hafa síðasta orðið.“ Sveinn Andri segir ljóst að Hæstiréttur geti ekki endurmetið mat á sönnunargildi munnlegra framburða. Hann segir að umbjóðandi sinn hefði kosið að málinu væri lokið, „en það er ekki og ég vænti þess að Landsréttur taki þetta hratt og vel fyrir.“ Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs, í Landsrétti er málið var tekið fyrir þar fyrir ári síðan. mbl.is/Karítas Kom dómurinn þér á óvart? „Já og nei, ég átti aldrei von á því að þeir myndu fara að snúa við sýknudóminum. En þeir eru nákvæmir þarna í Hæstarétti og þá er það bara eins og það er,“ segir Sveinn Andri og bætir við að „það hefði verið fínt að ljúka þessu máli þar sem þetta er búið að liggja á báðum ákærðu eins og mara.“ Frétt af mbl.is Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Kom nokkuð á óvart Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs Nathanssonar, sagði niðurstöðuna koma nokkuð á óvart. Hann bendir að það sem komi fram í niðurstöðu Hæstaréttar hafi ekki verið mikið til umfjöllunar í málflutningi. „Hæstiréttur gerir töluvert miklar athugasemdir við í rauninni formið á niðurstöðu í Landsrétti og telur nauðsynlegt að málið fái endurtekna meðferð þar og að þar verði bætt úr þessum ágöllum.“ Einar Oddur Sigurðsson, verjandi Ísidórs, í Hæstarétti í dag. mbl.is/Karítas Spurður hvort fordæmi séu fyrir slíkri niðurstöðu svarar hann því játandi. „En þetta virðist vera töluvert vel rökstutt og það er umfjöllun um þetta í dómi Hæstaréttar, jafnvel ítarlegri en maður hefur séð áður.“ Hann telur að sinn skjólstæðingur muni ekki gera neinar athugasemdir en þessi niðurstaða þýði að ekki fáist niðurstaða í málið á næstunni. Ísidór Nathansson í Landsrétti í febrúar árið 2025. mbl.is/Karítas „Þetta þýðir bara að við förum í nýja málsmeðferð fyrir Landsrétti og hún er í rauninni bara endurtekin, þannig það þýðir lengri tími í bið fyrir sakborninga og lengri tími eftir niðurstöðu í málinu. Þetta er frekari vinna í greinargerðaskrifum og þinghöldum,“ útskýrir hann. Það megi alveg búast við ári í viðbót vegna endurtekinnar málsmeðferðar fyrir Landsrétti. Svo þurfi að gera ráð fyrir mögulegu framhaldi á ný fyrir Hæstarétti. Nánar verður greint frá dómi Hæstaréttar á mbl.is innan skamms. Frétt af mbl.is Ólíkir túlkunarkostir á dómstigunum Tengdar fréttir Ákært fyrir hryðjuverk Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Engin vitneskja né ásetningur um að fremja hryðjuverk Þriggja barna faðir en ekki hryðjuverkamaður Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Sindri mættur fyrir dóm » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Í mikilli toppbaráttu í Suður-Afríku „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Viggó verðlaunaður með hæstu einkunn Hellti yfir sig eldfimum vökva og kveikti í sér Deilt um nýja menningarmiðstöð í Kópavogi Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Hikar við að leggja fyrir sama heimanám og áður Skýrt umboð skiptir máli Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Í mikilli toppbaráttu í Suður-Afríku „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Viggó verðlaunaður með hæstu einkunn Hellti yfir sig eldfimum vökva og kveikti í sér Deilt um nýja menningarmiðstöð í Kópavogi Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Aðild að ESB – hver ákveður nýtingu fiskistofna? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Æðsti leiðtogi Írans heill á húfi Skýrt umboð skiptir máli Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Mest lesið Í gær Í vikunni Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Ósamstiga um nægan meirihluta Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Opnað eftir 700 daga: „Það er uppsafnaður vandi“ Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Kíló af kókaíni falið í steyptu borði Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Ósáttur við ummæli ráðherra Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Varla hægt að leggja Arnald fyrir í 10. bekk Skólastjórinn hættir alfarið Íslandsferðin átti að vera síðasta samverustundin Drumbarnir frá NATO Tvær ungar konur fengu sjö milljónir í vasann Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Koma bara ef þeir fá læknishjálp Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Andlát: Árni Árnason

Share this article