- What: Employees of a META subcontractor in Kenya were found to have access to raw video data from Ray-Ban smart glasses.
- Impact: The data was visible on their devices, raising privacy concerns.
Verktakar samfélagsmiðlafyrirtækisins META hafa aðgang að hráu myndefni frá notendum Ray-Ban snjallgleraugna. Efnið er ekki afmáð heldur birtist skýrt á skjám verktakanna. Þetta kemur fram í sameiginlegri umfjöllun Svenska Dagbladet og Göteborgs-Posten. Fyrirtækið SAMA er undirverktaki META í borginni Nairobi í Kenía. Starfsmenn þess ræddu við sænska blaðamenn undir nafnleynd. „Í sumum myndböndum getur maður séð einhvern á klósettinu eða að afklæða sig. Ég held að þau viti það ekki, annars væru þau ekki með kveikt á upptöku,“ sagði einn starfsmannanna við Svenska Dagbladet. Verktakarnir eru gagnaskrásetjarar (e. data annotators) sem taka á móti hráu efni og skrá það og flokka fyrir vélnámslíkön. Þegar Mark Zuckerberg, stofnandi og forstjóri META, kynnti snjallgleraugun til leiks sagðist hann sjá fyrir sér framtíð þar sem allir sæju heiminn í gegnum snjallgleraugu. Skilin milli raunveruleikans og viðbætts veruleika yrðu óljós. Sjö milljón pör seld árið 2025 Gleraugun eru vinsæl. META seldi rúmlega sjö milljón pör af Ray-Ban snjallgleraugum árið 2025. Þau eru fáanleg á Íslandi. Á einni íslenskri sölusíðu stendur í lýsingu: Ray-Ban Meta snjallgleraugun (1st gen) eru ný tegund gleraugna sem sameinar klassískt útlit Ray-Ban við háþróaða tækni. Snjallgleraugun bjóða upp á fjölda eiginleika eins og: Handfrjálsar mynd- og myndbandsupptökur. Innbyggða hátalara fyrir tónlistarspilun, og hljóðnema fyrir símtöl. Þau tengjast beint við snjallsímann þinn og eru hönnuð til að auðvelda samskipti og tengsl við tæknina á skilvirkan hátt, öllu pakkað inn í ramma hinna klassísku og tímalausu Ray-Ban sólgleraugna. Snjöll tækni sem auðveldar daglegt líf! Fullkomið fyrir þau sem vilja vera skrefi á undan með nýjustu tækni. META hóf samstarf við Ray-Ban árið 2019 og byrjaði að selja snjallgleraugun 2021. Tveimur árum síðar fór af stað stór auglýsingaherferð um nýju gerðina, sem nýtti gervigreind til að bæta upplifun notenda. Fyrstu tvö árin seldust tvö milljón pör en í fyrra seldust sjö milljón pör á einu ári. „Kynntu þér glænýju Meta Ray-Ban Display AI gleraugun og upplifðu heiminn upp á nýtt... Fyrsti skjárinn með innbyggðri linsu og stjórnbúnaði á úlnlið. Þannig getur þú sent og tekið á móti skilaboðum, tekið myndir og skoðað þær. Þýtt samtöl og sent út í beinni, án þess að taka upp símann,“ segir í auglýsingatextanum. Efni notenda er ekki aðeins meðhöndlað af gervigreind, heldur einnig fólki. Starfsmennirnir segja vinnu sína oft óþægilega; þeir hafi meðal annars séð mjög greinilega kortaupplýsingar af kreditkortum og myndbönd af fólki stunda kynlíf. Og þetta fólk, þ.e. notendur snjallgleraugnanna, höfðu ekki hugmynd fram að þessu að persónulegar myndir og myndbönd þeirra hafi ratað á skjái á hundrað manna skrifstofu í Kenía. Myndavélin í snjallgleraugunum fer ekki aðeins í gang þegar notendur byrja að taka upp heldur líka þegar notendur tala við gervigreindina. Í notendaskilmálum META kemur fram að hluti af gervigreindargögnum notenda gæti verið nýttur til að þjálfa tæknina. Ekki kemur fram hversu mikið af notendagögnum eru geymd eða hversu lengi. Hægt er að lesa nánari umfjöllun á vef Svenska Dagbladet.