- What: The U.S. plans to build its first oil refinery in 50 years, funded by Reliance Industries.
- Impact: The project involves a $30 billion agreement and will be located in Texas.
Donald Trump tilkynnti í gær að Bandaríkin muni byggja sína fyrstu olíuhreinsunarstöð í 50 ár sem verður fjármögnuð með fjárfestingum frá Reliance Industries, fyrirtæki indverska milljarðamæringsins Mukesh Ambani. Á vef CNBC er vitnað í færslu forsetans á Truth Social þar sem hann segir að um sé að ræða 300 milljarða dala samning. Hann þakkaði jafnframt Reliance Industries fyrir fjárfestinguna en fyrirtækið rekur stærstu olíuhreinsunarstöð í heimi í Jamnagar á Indlandi. Samkvæmt gögnum frá LSEG nemur markaðsvirði stöðvarinnar 206 milljörðum dala. Sjá einnig IEA leggur til stærstu losun neyðarolíubirgða í sögunni Nýja olíuhreinsunarstöðin, sem verður byggð af America First Refining, verður staðsett í Brownsville í Texas og verður hönnuð til að vinna úr bandarískri olíu. Samningurinn er til 20 ára en hvorki Reliance Industries né America First Refining hafa viljað tjá sig um málið. Framleiðslugeta stöðvarinnar verður um 1,2 milljarðar tunna af olíu á ári að verðmæti 125 milljarðar dala.