Réttarhöld yfir karlmanni sem er ákærður fyrir sérlega gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni hófust í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Stúlkan var sex til níu ára þegar hann braut af sér. Maðurinn hefur játað sök að hluta. Hann hlaut fimm ára dóm fyrir gróf kynferðisbrot gegn móðurinni fyrir tveimur árum. Hún baðst vægðar fyrir hans hönd og var dómurinn því skilorðsbundinn. Maðurinn er ákærður fyrir fjölda brota gegn stúlkunni, þar á meðal eru tólf brot sem falla undir lagaákvæði um nauðgun. Hann er að auki ákærður fyrir að hafa ítrekað áreitt stúlkuna kynferðislega. Aðalmeðferð er hafin yfir karlmanni sem er ákærður fyrir sérlega gróf kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni. Hann hlaut áður fimm ára dóm fyrir kynferðisbrot gegn móður hennar. Sá dómur var skilorðsbundinn því móðirin baðst vægðar. Maðurinn hefur áður hlotið dóm fyrir ítrekuð og gróf kynferðisbrot. Þá braut hann á sambýliskonu sinni, móður stúlkunnar sem hann er ákærður fyrir að brjóta á. Maðurinn hlaut fimm ára dóm en hann var allur skilorðsbundinn sem er mjög óvenjulegt. Konan sagði að sættir hefðu tekist með sér og manninum og þau væru aftur komin í sambúð. Hún sagði manninn hafa breytt hegðun sinni til muna og væri orðinn nærgætinn, góður faðir og góður maki. Hún sgaði að afplánun mannsins myndi bitna meira á sér en honum þar sem hún þyrfti þá að hætta námi til að vinna fyrir sér og eyðileggja þannig framtíðartekjumöguleika sína. Dómari féllst á beiðni konunnar og skilorðsbatt dóminn.