Iðan stendur á tímamótum en í ár er fræðslusetrið 20 ára. Iðan býður upp á sí- og endurmenntun í iðnaði ásamt annarri þjónustu eins og náms- og starfsráðgjöf, raunfærnimati, umsjón með sveinsprófum, erlendum samstarfsverkefnum og fleira. Við fengum Ólaf Ástgeirsson, leiðtoga bygginga- og mannvirkjagreina hjá Iðunni, og Vilborgu Helgu Harðardóttur, framkvæmdastjóra Iðunnar, til að segja okkur aðeins frá starfseminni. „Fræðslustarfsemi Iðunnar snýr að fimm iðngreinaflokkum, en jafnframt er unnið markvisst þvert á greinar þar sem sameiginlegar áskoranir kalla á heildstæða nálgun,” segir Ólafur. Greinarnar sem Iðan sinnir eru bygginga- og mannvirkjagreinar, málm- og véltæknigreinar, „Iðan er í jafnri eigu félaga launafólks og atvinnurekendasamtaka í iðnaði og fræðslan mótast af þeirra þörfum. Á þessu sviði er Iðan í raun eini aðilinn sem býður upp á jafn víðtæka og sérhæfða fræðslu,“ segir Ólafur. Fjölbreytt fræðsla og þjónusta „Fræðslan er fjölbreytt og nær út fyrir hið hefðbundna námskeiðsform. Boðið er upp á stað- og fjarnám, verklega kennslu, rafrænt efni, hlaðvörp og fræðslumyndbönd. Mikil áhersla er lögð á sveigjanleika í efnistökum og þjónustu til að mæta þörfum félagsfólks,” segir Vilborg. Iðan býður einnig upp á raunfærnimat þar sem færni og þekking einstaklinga er metin til styttingar náms. Þeir sem hafa starfað í a.m.k. 3 ár í sinni iðngrein og hafa náð 23 ára aldri geta þannig stytt sér leiðina að sveinsprófi, sem hefur reynst mikil hvatning og gengið afar vel. Iðan heldur einnig utan um framkvæmd sveinsprófa í 29 iðngreinum og gegnir þar lykilhlutverki fyrir iðnaðinn. „Starfsemin er í stöðugri þróun í takt við hraðar breytingar í tækni og starfsumhverfi. Á síðasta ári voru haldin um 500 námskeið með yfir 5.000 þátttakendum, sem jafngildir 15% aukningu í þátttöku. Það undirstrikar mikilvægi sí- og endurmenntunar fyrir samkeppnishæfni iðnaðarins og framtíð hans,” segir Vilborg. Ólafur nefnir sem dæmi að fyrir um 15 árum hafi Iðan haldið fyrstu námskeiðin um raka og myglu í húsum. Í dag eru haldin hundruð námskeiða um fjölbreytt og sértæk efni, allt frá gluggaþéttingum til réttindanámskeiða á borð við brunaþéttingar og vatnsúðakerfi. Hann segir að sí- og endurmenntun sé lykilatriði fyrir fólk sem starfar í byggingariðnaði, enda eigi sér stað miklar og hraðar breytingar í tækni, skipulagi og stjórnun. „Gervigreind og stafræn verkfæri hafa þegar einfaldað verkferla og stutt við betri stjórnun framkvæmda. Á sama tíma eru stöðugt að koma fram ný byggingarefni, verkfæri og aðferðir, auk aukinnar áherslu framleiðenda á vistvænar lausnir og eiturefnalaus efni sem bæta vinnuumhverfi og gæði mannvirkja.” Auka hæfni og samkeppnishæfni starfsfólks og fyrirtækja „Alþjóðlegt samstarf er einnig mikilvægur hluti af starfseminni, meðal annars í gegnum þróunarverkefni og náms- og starfsmannaskipti. Þá sækir Iðan erlenda sérfræðinga til landsins til að miðla þekkingu og bregðast við síbreytilegum þörfum atvinnulífsins,” segir Vilborg og bætir við að námskeiðin séu opin öllum óháð félagsaðild að Iðunni, en félagsfólk fái hins vegar fræðsluna á mun hagstæðara verði. „Hlutverk Iðunnar er að auka hæfni og samkeppnishæfni starfsfólks og fyrirtækja í iðnaði í nánu samstarfi við félögin sem mynda bakland starfseminnar. Með því að heimsækja fyrirtæki og starfsfólk á vettvangi er hægt að kortleggja raunverulegar þarfir og þróa fræðslu sem skilar árangri,” segir Ólafur að lokum. „Við viljum halda áfram á sömu braut, enda er símenntun gríðarlega mikilvæg til að viðhalda hæfni og samkeppnishæfni í umhverfi sem breytist hratt, fylgjast með þróuninni, sofna ekki á verðinum og tileinka sér nýja færni og skilning á því hvert hlutirnir eru að stefna,” segir Vilborg að lokum.