- What: Discussion on the financial sustainability of Félagsbústaðir
- Impact: Affects housing policy and financial management of social housing in Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 12.3.2026 | 15:28 Dregið verði úr lántökunum Félagsbústaðir brugðist við skýrslu um endurskoðun viðskiptalíkans. mbl.is/Eggert Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Stjórn Félagsbústaða kveðst sammála því áliti verkefnahóps um sjálfbærni í rekstri Félagsbústaða að æskilegt sé að lántaka við íbúðakaup lækki og að fundinn verði grundvöllur til þess að sjóðsstreymi íbúða verði ætíð jákvætt. Þannig ætti að skapast traustari grunnur fyrir sjálfbæran rekstur og um leið stækkun eignasafnsins svo að mæta megi eftirspurn eftir félagslegu leiguhúsnæði. Svo segir m.a. í umsögn stjórnar Félagsbústaða um skýrslu verkefnahóps um endurskoðun viðskiptalíkans Félagsbústaða, en nýlega var aflétt trúnaði af skýrslunni, sem ber yfirskriftina „Frá skuldsettum vexti til sjálfbærni – fjármögnun og uppbygging Félagsbústaða“. Umsögn stjórnarinnar, sem Morgunblaðið hefur undir höndum, verður rædd á fundi í borgarráði Reykjavíkur í dag. Í fyrrgreindri skýrslu er dregin upp frekar ófögur mynd af rekstri Félagsbústaða. Rekstrargrunnur sé þröngur og leiguverði haldið lágu til varnar leigjendum, sem þrengt hafi að svigrúmi félagsins til að mæta hækkandi kostnaði og nýjum fjárfestingum. Veltufé frá rekstri standi naumlega undir afborgunum og viðhaldi eigna. Þar kemur og fram að hingað til hafi uppbygging eignasafnsins miðað að því að fjölga íbúðum eins hratt og mögulegt hafi verið, enda biðlisti eftir félagslegu húsnæði langur. Til að ná því hafi félagið nýtt skuldsetningu til fulls og fjármagnað svo árum skipti ný kaup að mestu með lánum, án beins eiginfjárframlags við kaup. Segir stjórnin í umsögn sinni að sú aðferð sem notuð hefur verið við uppbyggingu eignasafns Félagsbústaða, hröð stækkun eignasafns með háu lánshlutfalli, leiði til viðkvæmni í rekstri og kalli á reglubundið inngrip. Framkomnar tillögur starfshópsins segir stjórnin miða að því að styðja rekstrarforsendur og rekstrargrunn Félagsbústaða, án hækkana á leiguverði umfram verðlagsbreytingar. Því sé lykilforsenda að dregið verði úr lántökum og nýkeyptar íbúðir skili jákvæðu sjóðsstreymi frá fyrsta degi. „Til þess að svo megi verða ætti eingöngu að kaupa kaupréttaríbúðir á næstu árum og skapa svigrúm þannig að eiginfjárframlag við íbúðakaup verði 30–40% af kaupverði.“ Hingað til hafi íbúðakaup verið fjármögnuð með 70% láni og 30% stofnframlagi. Þá er í umsögn stjórnarinnar vakin athygli á því að verði ákveðið að tekjutengja leigu tekjuhæstu leigjenda Félagsbústaða, eins og lagt sé til í fyrrgreindri skýrslu, verði vikið frá tilgangi félagsins. Slík útfærsla kunni að reynast flókin og væri betra að fylgja eftir reglum um tekjuviðmið. „Samkvæmt skýrslunni er nokkur fjöldi leigjenda sem uppfyllir ekki lengur skilyrði fyrir félagslegu leiguhúsnæði,“ segir í umsögn stjórnar Félagsbústaða, sem bendir einnig á að athuga þurfi með reglubundnum hætti þörf leigjenda Félagsbústaða um íbúðastærð m.t.t. þeirra breytinga sem kunna að hafa orðið frá því að úthlutun hins félagslega húsnæðis fór fram. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Norskur framherji á leið í Kópavoginn? Lárus oddviti Miðflokksins Safn Haraldar að hluta á sýningu „Við erum í rauninni hvítir“ Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ósatt, bara lygar“ Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Spá hækkun vaxta og verðbólgu Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Norskur framherji á leið í Kópavoginn? Lárus oddviti Miðflokksins Safn Haraldar að hluta á sýningu „Við erum í rauninni hvítir“ Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Borgarlína í sjálfheldu sérhagsmuna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Með alla anga úti fyrir okkar fólk“ Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Ingibjörg þakkar fyrir sig Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir