Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Sveitastjórnarmenn og bæjarstjórar skyldugir að birta hagsmunaskráningu sína

  • What: Proposed changes to municipal governance laws in Iceland
  • Impact: Affects transparency and accountability of local government officials
Read Full Article →

Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verða sett. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum. Þá eiga siðareglur sveitarstjórna líka að ná yfir bæjar- og sveitarstjóra, það er að segja þá sem ekki eru kjörnir fulltrúar. Þetta er meðal þess sem kemur fram í frumvarpi innviðaráðherra , Eyjólfs Ármannssonar, til sveitastjórnarlaga sem hann mælti fyrir á Alþingi í síðustu viku. Björn Ingi Óskarsson, lögfræðingur í innviðaráðuneytinu, er einn af höfundum frumvarpsins. Hann segir um þessar breytingar. „Þetta er í rauninni breyting sem hefur verið til tals í svolítið langan tíma. Stærri sveitarfélögin hafa nú þegar sett sér þessar reglur. Þetta er hluti af því að auka traust á stjórnsýslu sveitarfélaga; að kjörnir fulltrúar gefi upp, eins og alþingismenn og æðstu ráðamenn þjóðarinnar, helstu hagsmuni sína. [...] Þetta er hluti af alþjóðlegum sjónarmiðum varðandi varnir gegn spillingu.“ Í glærukynningu ráðuneytisins um frumvarpið segir orðrétt um þessar breytingar: „Skylda sveitarfélaga til að setja reglur um hagsmunaskráningar kjörinna fulltrúa, nefndarmanna, framkvæmdastjóra og æðstu stjórnenda.” Í dag er það þannig að sveitarfélög ákveða sjálf hvernig þau haga hagsmunaskráningu hjá fulltrúum í sveitastjórnum og eins hvort hún er birt opinberlega eða ekki. Fjallað er um nýja frumvarpið og rætt við Björn Inga Óskarsson í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þáttinn má hlusta á hér: Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verður að lögum. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum. Nærtæk dæmi sem snerta efni frumvarpsins Tvö nærtæk dæmi úr fréttum liðinna ára sem snerta þetta umfjöllunarefni frumvarpsins eru úr sveitarfélaginu Ölfusi. Elliði Vignisson bæjarstjóri í Ölfusi hefur talið sig vera undanþeginn siðareglum sveitarfélagsins vegna þess að hann er ekki kjörinn fulltrúi. Hann hefur sagt opinberlega, í umræðu um að minnsta kosti tvö mál, að hann sé undanþeginn siðareglum sveitarfélagsins þar sem þær eigi ekki við um hann þar sem hann sé ekki kjörinn fulltrúi. Ef þetta frumvarp verður að lögum geta bæjarstjórar sem ekki eru kjörnir fulltrúar ekki lengur haldið því fram að siðareglur sveitarfélaga eigi ekki við um þá. Árið 2024 var svo til dæmis greint frá því í fréttum Ríkissjónvarpsins að sveitarstjórnarmaðurinn Grétar Ingi Erlendsson í Ölfusi hefði verið gagnrýndur vegna eignarhalds síns á fyrirtæki sem fjallað var um í bæjarstjórn. Þetta eignarhald hans kom upp eftir að Grétar Ingi vék af fundi bæjarstjórnar þar sem teknar voru ákvarðanir sem snertu fyrirtæki sem hann og konan hans eru stórir hluthafar í. Í ljós kom að fulltrúar minnihlutans í sveitarstjórninni vissu ekki að hann væri hluthafi í þessu fyrirtæki sem ætlar að byggja 80 til 95 íbúðir í sveitarfélaginu. Í svörum Elliða Vignissonar bæjarstjóra í Ölfusi kom fram að hagsmunaskráning fyrir sveitarstjórnarmenn væri til á skrifstofu bæjarins en að hún væri ekki birt opinberlega. Elliði sagði að aðrir sveitarstjórnarmenn gætu fengið þessa hagsmunaskráningu senda ef þeir bæðu um það. Elliði undirstrikaði jafnframt að engin gagnrýni hefði komið fram á það að hagsmunaskráningin væri ekki aðgengileg opinberlega. Ef frumvarp innviðaráðherra verður að lögum þá mun hagsmunaskráning sveitarstjórnarmanna eiga að vera birt opinberlega. Tilfelli eins og það sem lýst er hér á því ekki geta komið upp og ef það kemur upp þá er hægt að vísa til hagsmunaskráningar sem er birt á opinberum vettvangi og er öllum opin. Þetta er grundvallarbreyting frá núgildandi fyrirkomulagi þar sem engar samræmdar reglur ná yfir hagsmunaskráningu sveitastjórnarmanna. Fjallað var um þetta í Þetta helst árið 2024. Þann þátt má hlusta á hér: Sveitarfélög á Íslandi verða skyldug til að birta hagsmunaskráningu kjörinna fulltrúa og æðstu stjórnenda þeirra opinberlega ef frumvarp um ný sveitarstjórnarlög verður að lögum. Þetta er nýbreytni sem ekki hefur áður verið í sveitarstjórnarlögum.

Share this article