Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Staðfesti sýknu í meiðyrðamáli – líkti starfsmannaleigu við nútímaþrælahald

Read Full Article →

Landsréttur sýknaði í dag Hjálmar Friðriksson, blaðamann á Samstöðinni, í meiðyrðamáli sem þrír eigendur starfsmannaleigu höfðuðu gegn honum. Félag mannanna þriggja stefndi Hjálmari einnig. Hjálmi hafði verið stefnt fyrir ummæli sem hann birti í fréttaflutningi á samstöðinni þegar greint var frá andláti manns sem lést í eldsvoða í atvinnu- og skrifstofuhúsnæði sem fyrirtækið leigði erlendum verkamönnum. Mennirnir þrír stefndu Hjálmari eftir að hann sagði þá nútímaþrælahaldara og sagði að félag þeirra stundaði einnig þrælahald sem dregið hefði mann til dauða. Mennirnir þrír kröfðust hver um sig að fá þrjár milljónir greiddar í skaðabætur. Þá var einnig farið fram á að þrjú af ummælum Hjálmars yrðu dæmd dauð og ómerk. Farið var fram á sex milljónir í skaðabætur í stefnu félagsins. Ummælin sem krafist var að yrðu dæmd dauð og ómerk. „Arnar, Pétur Árni og Jón Einar eru nútíma þrælahaldarar“ „Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútíma þrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi.“ „Það er ekki að ástæðulausu sem það má með sanni kalla þessa menn þrælahaldara.“ Ekki talinn hafa sakað mennina um mansal Hjálmar hafði áður verið sýknaður í héraðsdómi af bæði kröfum mannanna þriggja og félags þeirra. Í niðurstöðu Landsréttar var fjallað um það að Hjálmar hefði mögulega með orðum sínum verið að saka mennina þrjá um mansal. Hann var spurður að því við skýrslugjöf og sagði Hjálmar þá að mansal þýddi í raun þrældómur og að orðið mansal væri fínna orð yfir þrælahald. Hann sagði þó einnig að hefði hann ætlað að saka mennina um mansal hefði hann notað það orð. Landsréttur taldi ekki hægt að fallast á það að Hjálmar hefði ásakað mennina þrjá um mansal. Horft til fyrri dóms í máli tengdu fjölmiðlum Einnig var fjallað um þau ummæli sem þóttu ganga hvað lengst í niðurstöðu Landsréttar. Þau voru „Sannleikurinn er þó að Elja stundar nútímaþrælahald, sem hefur nú dregið mann til dauða á Íslandi.“ Landsréttur taldi að með þessum orðum væri almennt vísað til tiltekinnar starfsemi sem kalla mætti nútímaþrælahald og hefði dregið mann til dauða án þess að fullyrt væri að mennirnir eða félag þeirra hefðu beinlínis orðið valdir að dauða hans. Horft var til dómafordæmis Hæstaréttar þegar Arnþrúður Karlsdóttir, eigandi Útvarps Sögu, var sýknuð af miskabótakröfum Reynis Traustasonar, ritstjóra Mannlífs, vegna ummæla sem hún lét falla um hann í útvarpsþætti á Útvarpi Sögu. Mönnunum þremur og félagi þeirra var alls gert að greiða Hjálmari 1,4 milljónir í málskostnað fyrir Landsrétti.

Share this article