Björgunarsveitir hafa verið boðaðar út norðan og sunnan Hölluvörðuheiðar þar sem á milli 20 og 40 eru fastir í bílum sem telja á annan tug. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að björgunaraðgerðir standi enn yfir. Í skilaboðum frá Landsbjörgu segir að þó nokkuð hafi verið um það í dag að björgunarsveitir hafi farið til aðstoðar ferðalöngum sem fest hafa bíla sína. Á Súðavík hefur björgunarsveitin Kofri farið í nokkur verkefni bæði innan bæjar en líka inni í Ísafjarðardjúpi. Á Klettshálsi voru ferðalangar í að minnsta kosti 2 bílum í vandræðum og fóru Björgunarsveitin Heimamenn frá Reykhólum og Björgunarsveitin Lómfelli á Brjánslæk þeim til aðstoðar. Holtavörðuheiðinni var lokað fyrir um tveimur tímum vegna veðuraðstæðna. Í ábendingu veðurfræðings Vegagerðarinnar er reiknað með að færð spillist frá Snæfellsnesi að Tröllaskaga, en einnig verður hvasst og blint í éljum og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrenglsum í nótt. Þá er búist við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum í nótt og í fyrramálið, en það dregur úr vindi og ofankomu á morgun. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að nánari upplýsingar bárust frá Landsbjörg.