Fjórir leikir voru í 20. umferð Bónusdeildar karla í körfubolta í kvöld: Þór Þorlákshöfn 74-79 Ármann KR 107-105 Keflavík Álftanes 89-93 ÍR Njarðvík 110-78 Valur Mikilvæg stig í fallbaráttunni Þetta er þriðja síðasta umferð deildarinnar og allir leikir því gríðarmikilvægir en fáir jafn mikilvægir og fallbaráttuslagur Þórs og Ármanns. Þór var fyrir leikinn í 10. sæti með 10 stig, Ármann í 11. sæti með 8 stig. Leikurinn var nokkuð sveiflukenndur, Ármenningar byrjuðu betur og voru sjö stigum yfir eftir fyrsta leikhluta en Þórsarar komust yfir í öðrum leikhluta þó þeir hafi verið stigi undir í hálfleik, 74-79. Heimamenn voru svo betri í þriðja leikhluta og leiddu með 6 stigum fyrir lokafjórðunginn en þann unnu Ármenningar 9-20 og leikinn því með fimm stigum, 74-79. Liðin eru því jöfn með tíu stig en Ármann hefur unnið báða leiki liðanna í vetur og stendur því betur. ÍA getur auk þess jafnað liðin að stigum en liðin tekur á móti Tindastóli á laugardag. Njarðvíkingar fóru á kostum Óvæntustu úrslit kvöldsins komu í Njarðvík þar sem heimamenn unnu stórsigur á Val, 110-78. Valsarar voru með tólf stigum meira en Njarðvíkingar fyrir leikinn og í harðri baráttu um að enda sem efst í deildinni. Átta efstu liðin komast í úrslitakeppnina og Álftanes er í níunda sæti, tveimur stigum á eftir Njarðvík. Álftnesingar þurfa því á öllum stigum að halda en náðu ekki í þau í kvöld því naumt tap fyrir ÍR var niðurstaðan, 89-93. ÍR er á góðri leið með að tryggja sæti sitt í úrslitakeppninni, liðið er með fjórum stigum meira en Álftanes. KR vann svo Keflavík 107-105 þar sem lokasekúndurnar voru æsispennandi. KR-ingar leiddu með 15 stigum eftir þrjá leikhluta en Keflvíkingar gáfust ekki upp og jöfnuðu þegar 20 sekúndur lifðu leiks. Toms Elvis Leimanis skoraði þó flautukörfu fyrir KR sem fagnaði mikilvægum tveimur stigum. Staðan í deildinni