Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Holtavörðuheiði lokuð til ellefu og víða ófært

Read Full Article →

Afleiðinga hríðarveðursins í gær og í nótt gætir enn víða. Fjöldi vega var ófær í morgun en þeir eru smám saman að opnast. Holtavörðuheiði er þó enn lokuð og verður svo í það minnsta til ellefu, þá koma upplýsingar um hvort vegurinn verði opnaður þá. Vont færi er á heiðinni og þar eru bílar fastir. Vegagerðin bendir á hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. Brattabrekka hefur opnast en þar er þæfingur. Flughált er með ströndinni milli Heydalsafleggjara og Hellisands. Vegurinn um Eyrarhlíð var opnaður um klukkan sjö í morgun. Ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Dynjandisheiði og í Ísafjarðardjúpi. Unnið er að mokstri á öllum helstu leiðum á Vestfjörðum. Búið er að opna Þröskulda en þar er þungfært og unnið að breikkun. Þæfingur er á Klettshálsi. Flateyrarvegi og veginum um Súðavíkurhlíð var lokað vegna snjóflóðahættu og koma nýjar upplýsingar um stöðu þeirra vega klukkan tíu. Snjóþekja er á Öxnadalsheiði og ófært í Almenningum. Þungfært er á Siglufjarðarvegi og í kringum Sauðárkrók. Nýjustu upplýsingar um færð birtast á umferðarvef Veðurstofunnar. Fréttin var uppfærð klukkan 9:02.

Share this article