- What: Election list for the Mid-Faction in Garðabæ
- Impact: Political developments in a local Icelandic community
Stjórn kjördæmafélags Miðflokksins í Garðabæ hefur staðfest sex efstu frambjóðendur á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar í vor. Lárus Guðmundsson, framkvæmdastjóri og varaþingmaður flokksins, er oddviti listans. Hann var líka oddviti í síðustu bæjarstjórnarkosningum. Laufey Gunnþórsdóttir verkfræðingur skipar annað sætið og Snorri Marteinsson, fjármálastjóri og formaður Miðflokksfélags Garðabæjar, er í þriðja sæti. Miðflokkurinn náði ekki inn fulltrúa í bæjarstjórn Garðabæjar í síðustu kosningum.