Ferðalangar á Norðurlandi eru hvattir til að kynna sér ástand vega áður en lagt er af stað. Seint í dag er von á næstu lægð frá Grænlandshafi og í nótt og snemma í fyrramálið taka gular viðvaranir gildi á Norðurlandi vestra, Vestfjörðum og Breiðafirði. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands: Nú í morgunsárið er snjókoma eða slydda með köflum norðanlands og ferðalangar eru hvattir til að kanna ástand vega hjá Vegagerðinni áður en lagt er af stað, sér í lagi ef ætlunin er að fara yfir fjallvegi. Í öðrum landshlutum ætti að vera þurrt í dag og vindinn lægir og verður víðast hvar hægur eftir hádegi. Næsta lægð er væntanleg inn á Grænlandshaf seint í dag og áhrifa hennar fer að gæta í kvöld og nótt með vaxandi vindi með úrkomu. Á morgun er útlit fyrir norðaustan 10-18 m/s, en 15-23 norðvestantil á landinu. Slydda eða snjókoma með köflum, en styttir upp suðvestanlands eftir hádegi. Það eru því horfur á hríðarveðri norðvestantil á morgun og einnig geta verið erfið akstursskilyrði við suðurströndina. Dregur úr vindi annað kvöld.