Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 14.3.2026 | 8:55 Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Hjónin Guðmundur og Jakobína Þráinsdóttir ásamt Ferguson. Kristján Jónsson [email protected] Setja bókamerki Þeir eru ófáir knattspyrnuunnendurnir sem myndu vilja tylla sér niður með knattspyrnustjóranum sigursæla sir Alex Ferguson og ræða við hann í rólegheitunum. Guðmundur Torfason, fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu og nú formaður knattspyrnudeildar Fram, fékk slíkt tækifæri á dögunum. Fundum þeirra bar saman á deildarleik hjá skoska liðinu St. Mirren gegn Motherwell en báðir voru þeir þar í boði félagsins. Ferguson sem fyrrverandi knattspyrnustjóri liðsins og Guðmundur sem fyrrverandi leikmaður en Guðmundur var hjá St. Mirren 1989-1992. Guðmundur er í miklum metum hjá stuðningsmönnum enda var hann markahæstur hjá liðinu öll tímabilin. „Þetta var auðvitað mjög ánægjulegt fyrir mig og fjölskylduna því Jakobína eiginkona mín og synirnir Ísak og Nikulás komu með. Ég hafði til að mynda ekki farið á leik hjá St. Mirren eftir að liðið fór að spila á nýjum leikvangi,“ sagði Guðmundur þegar Morgunblaðið hafði samband en St. Mirren flutti árið 2009 eftir meira en öld á Love Street. Á þeim kunna leikvangi gerðu bæði Guðmundur og Þórólfur Beck garðinn frægan. Íslenskir knattspyrnuunnendur þekkja David Winnie, tengdason Íslands og Íslandsmeistara með KR, en Guðmundur og Winnie voru samherjar hjá St. Mirren og eru góðir vinir. „David ætlaði að vera viðstaddur en komst ekki og færi ég honum mínar bestu kveðjur.“ Þeirra gamli stjóri Tony Fitzpatrick var á leiknum og sinnir enn verkefnum fyrir félagið en hann keypti Guðmund til St. Mirren sem þáverandi knattspyrnustjóri. Félagið greindi frá því að Guðmundur og Ferguson hefðu verið sérstakir gestir á leiknum og boðnir velkomnir í stjórnarherberginu en slíkar móttökur fær ekki hver sem er. „Þetta gera Skotarnir afburðavel og hefðirnar eru svo sterkar. Þetta var heiður fyrir mig og gaman að þeir skuli muna svona vel eftir mér,“ segir Guðmundur sem fékk hlýjar móttökur hjá forsvarsmönnum félagsins og stuðningsmönnum en fram kemur á samfélagsmiðlum að stuðningsmenn St. Mirren hafi dregið fram söngbækurnar og sungið lofsöngva um Guðmund sem urðu til á sínum tíma. Mundi eftir Íslendingnum Ferguson mundi eftir Guðmundi sem leikmanni sem er svo sem engin furða því Guðmundur skoraði þrennu gegn Manchester United í vináttuleik sumarið 1990. Þá var United enskur bikarmeistari undir stjórn Fergusons og varð vorið eftir Evrópumeistari bikarhafa. Gefur þetta ágæta mynd af því hversu heitur Guðmundur var í framlínunni hjá St. Mirren. „Það var auðvitað ekki verra að sir Alex Ferguson væri að koma í stjórnarherbergið hjá félaginu í fyrsta skipti í 48 ár. Við settumst niður og spjölluðum í rauninni um heima og geima. Jim Irvine stjórnarmaður hjá félaginu sagði mér að Ferguson væri alltaf með sérstakar óskir varðandi rauðvín og mér þótti rauðvínsvalið hjá honum ansi gott,“ segir Guðmundur og nefnir að hann hafi eitt sinn hitt Ferguson í Skotlandi þegar Guðmundur var að afla sér þjálfaramenntunar. Guðmundur segir Íslandsferðirnar á níunda áratugnum vera Ferguson minnisstæðar. Aberdeen mætti þá ÍA tvívegis í Evrópukeppnum og Ferguson var aðstoðarþjálfari Skota í undankeppni HM 1986. „Sir Alex minntist á hina hrikalegu tæklingu Graemes Souness í landsleiknum á vin minn Sigga Jóns, sem var oft herbergisfélagi minn í landsliðinu og að mínu mati einn besti knattspyrnumaður Íslands.“ 34 ár eru síðan Guðmundur lék síðast með St. Mirren og 48 ár síðan Ferguson stýrði liðinu. Ferguson var þá sagt upp störfum á sínum tíma og skoskir fjölmiðlar gerðu nokkuð úr því á dögunum að hann þáði boð St. Mirren. Það virðist hafa tekið sinn tíma hjá Ferguson að fyrirgefa uppsögnina og hafði hann ekki sést hjá St. Mirren síðan 1978 nema þegar hann mætti liðinu sem stjóri annars liðs. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Himnalón í Húsi málarans Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Voru reknar fyrir að skella sér á djammið Íslensk tónlistarveisla í Texas Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hóta að ráðast á olíuinnviði Bandaríkjanna Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Quang Le fær ekki að opna bankareikning Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hvað veldur langvinnu Covid? Kvartað undan rukkunum Isavia Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Segir verðmiðann slá sig sem háan Hjálmar H. Ragnarsson látinn Hvessir á landinu í nótt Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn „Lögin spretta upp úr mínu lífi og reynslu“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » Himnalón í Húsi málarans Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Voru reknar fyrir að skella sér á djammið Íslensk tónlistarveisla í Texas Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Holtavörðuheiði lokað vegna umferðaslyss Lentu í vandræðum uppi á jökli Hóta að ráðast á olíuinnviði Bandaríkjanna Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Hvað veldur langvinnu Covid? Kvartað undan rukkunum Isavia Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Segir verðmiðann slá sig sem háan Hjálmar H. Ragnarsson látinn Hvessir á landinu í nótt Myndskeið: Davíð Oddsson kvaddur í hinsta sinn „Lögin spretta upp úr mínu lífi og reynslu“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar

Share this article