Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Dulkóðuð skilaboð talin hafa verið send á útsendara Írans utan Írans

U.S. federal authorities intercepted encrypted messages from Iran, suspected to be an activation order for covert "sleeper agents" residing abroad, following the death of Ayatollah Khamenei. The messages, intended for recipients with knowledge of the specific encryption, prompted a warning to law enforcement to increase monitoring of suspicious radio frequencies. While the full content remains undeciphered, authorities assess the communications could be a call to action for retaliatory operations, including espionage, sabotage, or attacks.
Read Full Article →

Alríkisyfirvöld í Bandaríkjunum hleruðu dulkóðuð skilaboð sem talin eru koma frá Íran og gætu verið boðun til aðgerða til íranskra útsendara utan Írans. Alríkisyfirvöldin hafa sent viðvörun til lögregluyfirvalda, segir í frétt fjölmiðilsins ABC news. Bráðabirgðaathugun leiddi í ljós að skilaboðin hafi verið send til margra landa, stuttu eftir að æðstiklerkur Írans, Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í árás Bandaríkjanna og Ísrael 28. febrúar. Skilaboðin voru ætluð leynilegum viðtakendum sem búa yfir þekkingu á dulkóðun þeirra og skilja skilaboðin. Þó að ekki hafi tekist að ráða í innihald skilaboðanna að fullu enn sem komið er, þá töldu alríkisyfirvöld ástæðu til að vara lögregluyfirvöld við, svo lögreglan gæti aukið eftirlit sitt með grunsamlegri útvarpstíðni. Ef rétt reynist að skilaboðin innihaldi ákall til aðgerða gæti það leitt af sér hefndaraðgerðir Írana á Vesturlöndum. Sérfræðingar telja að Íranir eigi net njósnara bæði í Evrópu og Bandaríkjunum, samkvæmt frétt norska ríkisútvarpsins NRK . Ola Kaldager, fyrrum yfirmaður norsku leyniþjónustunnar, að það sé ekki nokkur vafi á því að svokallaðir sofandi útsendarar séu í Noregi. Sofandi útsendarar lifi margir hverjir venjulegu lífi í landi utan Írans og láti lítið fyrir sér fara, allt þar til boð eða skipun um aðgerðir berast. Aðgerðirnar geta verið morð, skemmdarverk, hryðjuverk eða söfnun viðkvæmra upplýsinga.

Share this article