Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Stjórnvöld keppast við að endurheimta ímynd sína sem öruggt ríki

The article describes a geopolitical threat, not a technical vulnerability; it details Iranian drone and missile attacks targeting UAE cities and the subsequent information operations risk. The UAE government's response to this physical threat includes arresting individuals for sharing "misleading information" and imagery of the attacks on social media, a tactic analysts warn may damage the country's reputation and economic diversification efforts. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patches, or workarounds are discussed.
Read Full Article →

Stjórnvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum keppast við að endurheimta ímynd sína sem öruggt ríki eftir miklar árásir Írana síðan átök hófust í Mið-Austurlöndum. Ríkið hefur markaðssett sig sem eitt öruggasta ríki Mið-Austurlanda og ferðaþjónusta er ein mikilvægasta atvinnugrein landsins. Íranir hafa skotið yfir 1.800 flugskeytum og drónum á borgir í Sameinuðu arabísku furstadæmunum en loftvarnarkerfi landsins hefur náð að stöðva flestar árásirnar. Myndskeið af árásunum komust í töluverða dreifingu á samfélagsmiðlum og stjórnvöld brugðust hratt og hart við því. Refsivert að deila myndefni af árásum 66 ferðamenn, áhrifavaldar og erlendir ríkisborgarara voru handteknir í Abu Dhabi og Dubai fyrir að dreifa upplýsingaóreiðu og deila staðsetningum og myndefni á samfélagsmiðlum sem sýna árásir á borgirnar. Fólkið er sakað um að deila ónákvæmum og misvísandi upplýsingum sem yfirvöld segja að geti haft áhrif á almenningsálit og dreift ósannindum í samfélaginu. Ryan Bohl, sérfræðingur í alþjóðamálum hjá Rane Network, telur að handtökurnar geti skaðað ímynd Sameinuðu arabísku furstadæmanna enn frekar, sér í lagi meðal Vesturlandaþjóða. „Þessi stefna stjórnvalda mun snúast gegn þeim, sér í lagi meðal ákveðinna hópa eins og Vesturlandabúa og íbúa lýðræðisþjóða sem eru vanir að búa við tjáningarfrelsi,“ segir Bohl. Handtökurnar hafa þó verið mörgum áhrifavöldum á samfélagsmiðlum víti til varnaðar og þeir hafa sumir tekið upp málstað stjórnvalda og sagt fylgjendum sínum á samfélagsmiðlum að ríkið sé öruggt. Árásirnar gætu haft áhrif á fjárfestingar í atvinnulífinu Um 90% íbúa Sameinuðu arabísku furstadæmanna eru erlendir ríkisborgarar. Þeir eru gríðarlega mikilvægt vinnuafl og auka fjölbreytni í atvinnulífinu í ferðaþjónustu og þjónustu en Dubai getur ekki eingöngu treyst á tekjur frá olíuiðnaðinum. „Ef stórir fjárfestar í innviðum, tækni og fasteignum og fleira missa trúnna á því að fjárfestingar þeirra séu öruggar þá myndi það hafa mikil áhrif á áætlanir Sameinuðu arabísku furstadæmanna um að auka fjölbreytni í atvinnulífinu,“ segir Bohl.

Share this article