Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Björgunarsveitir stóðu í ströngu á Sandskeiði og Vestfjörðum

Read Full Article →

Björgunarsveitir á Vestfjörðum og Reykjavík voru stóran hluta nætur að aðstoða ferðalanga sem voru í vandræðum sökum slæmrar færðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg. Þar segir að á öðrum tímanum í nótt hafi Hjálparsveit skáta í Reykjavík verið send upp á Sandskeið til að aðstoða fjölda fólks sem lent hafði í vandræðum vegna slæmrar færðar og skyggnis. Þar stóðu bílar fastir frá Lækjarbotnum og austur fyrir afleggjarann upp í Bláfjöll. Mikil hálka var á veginum og þreifandi bylur og einhverjir ökumenn höfðu lent út af veginum. Farþegar hátt í 20 ökutækja voru aðstoðaðir, ýmist með því að flytja þá í bæinn eða losa bíla þeirra og fylgja þeim í bæinn. Aðgerðum lauk klukkan hálf sex í morgun. Um svipað leyti var björgunarsveitin Tálkni á Tálknafirði kölluð út vegna bifreiðar sem var í vandræðum á Hálfdán. Þrír voru í bílnum og var þeim komið í skjól í björgunarsveitarbíl og fluttir niður af fjallveginum. Skömmu fyrir klukkan fimm í morgun var björgunarsveitin Dýri á Þingeyri boðuð út vegna ferðalanga á Dynjandisheiði. Tveir voru fluttir með björgunarsveitarbíl áleiðis til Ísafjarðar. Áframhaldandi ófærð og erfið akstursskilyrði Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við norðaustan stórhríð á Vestfjörðum með tilheyrandi ófærð. Þá varar hann við erfiðum akstursskilyrðum og blindu í hríð á utanverðum Tröllaskaga, og á fjallvegum á Austfjörðum, svo sem í Fagradal og á Fjarðarheiði, eftir hádegi og fram á nótt. Snarpar vindhviður, um 35 metrar á sekúndu, í Öræfum í fyrstu og svo undir Hafnarfjalli og á Snæfellsnesi eftir hádegi og fram á kvöld, og aftur snarpar vindhviður í Öræfum í kvöld.

Share this article