- What: Person's return to Hjaltlandseyjar for tourism
- Impact: Local community
Innlent | Sunnudagsblað | 15.3.2026 | 13:25 Langar í hús á Hjaltlandseyjum Ingibjörg Rósa Björnsdóttir er kolfallin fyrir Hjaltlandseyjum. Ásdís Ásgeirsdóttir Setja bókamerki I ngibjörg féll fyrir Bretlandi og öllu bresku þegar hún var au pair-stúlka þar í landi á unglingsárum. Sá draumur bjó alltaf í henni að prófa að búa þar aftur og árið 2013 lét hún verða af því og flutti til Bretlandseyja, fyrst til Suður-Englands, síðar til London og loks til Edinborgar. Þar vann hún í lausablaðamennsku og í Skotlandi var hún einnig í uppistandi. Hjaltlandseyjar heilluðu alltaf Ingibjörgu og lét hún loks verða af því að skoða eyjarnar sem hún svo kolféll fyrir. Í vor heldur hún til eyjanna með 40 manna hópi Íslendinga þar sem hún mun kynna fyrir þeim lystisemdir þessara dulúðlegu eyja. Smáhestar, matur og saga Hvað gerir ferðamaður á Hjaltlandseyjum? „Fyrst er hægt að rölta um Leirvík og skoða sig um, en það er krúttlegur bær. Ef þú ert aðdáandi þáttanna Shetland geturðu gengið niður að sjó og séð hvar húsið hans Jimmys Perez er. Á suðureynni er hægt að skoða Jarlshof þar sem fornleifafræðingar hafa grafið niður á minjar frá mörgum mismunandi tímabilum,“ segir hún. Húsið hans Jimmy Perez úr þáttunum Shetland má skoða í Leirvík. Unsplash/Don Lodge „Svo þarf að heilsa upp á smáhestana, Shetland pony, sem eru mun minni en okkar íslenski. Þarna er líka mikil handverkshefð og eru eyjaskeggjar þekktir fyrir prjónaskap, skartgripagerð og blúndugerð en einnig vinna þeir mikið í járn. Ég ætla líka að fara með hópinn minn til Unst, sem er nyrsta eyja breska konungsveldisins, en þar er eftirlíking af víkingaskipi og bátasögu eyjanna gerð góð skil,“ segir Ingibjörg. „Maturinn er góður þarna, fiskurinn og kræklingurinn, og um að gera að smakka. Þarna eru líka tvö mjög flott söfn sem vert er að skoða, annað segir meðal annars frá því að í stríðinu var mikilvæg keðja mynduð milli eyjanna og Noregs, en þá fóru fiskibátar hundruð ferða í myrkri og kulda upp eftir Noregsströnd með birgðir og komu með flóttafólk til baka, sem er alveg ótrúlega merkileg saga. “ Fallegt er á Hjaltlandseyjum. Ljósmynd/Ingibjörg Rósa Ert þú kolfallin fyrir Hjaltlandseyjum? „Já, ég var meira að segja farin að litast um eftir húsi þarna til að kaupa,“ segir Ingibjörg og brosir. Ítarlegt viðtal er við Ingibjörgu í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fyrirliðinn dró hælisumsókn til baka Hilmar sló eigið Íslandsmet Langar í hús á Hjaltlandseyjum Einn fær rúmar 800 þúsund Flestir fjallvegir lokaðir á Vestfjörðum Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Kvartað undan rukkunum Isavia Segir Pútín hjálpa Írönum „dálítið“ Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Unnið við lúxushótel á ný Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Ferðalangar víða í vandræðum vegna færðar Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Fyrirliðinn dró hælisumsókn til baka Hilmar sló eigið Íslandsmet Langar í hús á Hjaltlandseyjum Einn fær rúmar 800 þúsund Flestir fjallvegir lokaðir á Vestfjörðum Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvessir á landinu í nótt Segir verðmiðann slá sig sem háan Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Yfir eitt þúsund árásir á dag Mest lesið Í gær Í vikunni Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Drukknir menn reikuðu um gólfið „Hélt ég væri game over“ Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Unnið við lúxushótel á ný Varðskipið Þór í viðbragðsstöðu í Ísafjarðardjúpi Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Snjóflóð féllu í Ólafsfirði, Súgandafirði og á Flateyri Maður með hníf á lofti yfirbugaður og handtekinn Ferðalangar víða í vandræðum vegna færðar Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir