- What: Trump administration receives $10 billion in funding from TikTok investors
- Impact: Financial settlement related to TikTok's U.S. operations
Ríkisstjórn Donalds Trumps mun fá rúmlega 10 milljarða dala þóknun, eða sem nemur 125 milljörðum króna, frá fjárfestum sem gengu nýlega frá yfirtöku á starfsemi TikTok í Bandaríkjunum, samkvæmt heimildarmönnum The Wall Street Journal . Greiðslan er hluti af samkomulagi sem tryggði umræddum fjárfestahópi, sem er sagður hliðhollur ríkisstjórn Trumps, stjórn á starfsemi TikTok í Bandaríkjunum frá kínverska móðurfélaginu ByteDance. Samhliða mun fjárfestahópurinn leggja til nýtt fé fyrir nýstofnað rekstrarfélag sem mun halda úti samfélagsmiðlinum í Bandaríkjunum. Fjárfestahópurinn inniheldur Oracle, bandaríska fjárfestingarfélagið Silver Lake og Abú-Dabí sjóðinn MGX. Hópurinn greiddi bandaríska fjármálaráðuneytinu 2,5 milljarða dala þegar viðskiptunum lauk í janúar og munu inna af hendi frekari greiðslur þar til 10 milljarða dala markinu er náð. Þegar tilkynnt var um hin fyrirhuguðu viðskipti í september sagði Trump að þó ekki hafi verið búið að ganga frá endanlegu samkomulagi þá myndi bandaríska ríkið fá eitthvað í sinn hlut. Hann sagði að stærð samningsins og sú vinna og fyrirhöfn sem aðkoma ríkisins hefði haft í för með sér réttlættu þóknun af þessu tagi. Greiðsla upp á 10 milljarða dala væri nánast fordæmalaus fyrir stjórnvöld sem aðstoða við að koma viðskiptasamningi á, að sögn sagnfræðinga. Varaforsetinn JD Vance hefur áður sagt að nýja TikTok-félagið í Bandaríkjunum sé metið á um 14 milljarða dala í samningnum. Sumir greinendur í tæknigeiranum telja að það sé verulegt vanmat á virði fyrirtækisins. Samningurinn felur í sér að bandaríska félagið þarfa að deila hagnaði með ByteDance. Kínverka félagið veitti nýja fyrirtækinu leyfi til að nota vinsæla algóriþmann sinn svo sé að þjálfa það að fullu með bandarískum notendum. ByteDance á áfram um 20% hlut í bandarísku rekstrareiningunni. Í umfjöllun WSJ segir að fjárfestingarbankar sem veita ráðgjöf í hefðbundnum viðskiptasamningum fái yfirleitt þóknanir sem nema minna en 1% af virði samningsins, og hlutfallið lækki almennt eftir því sem samningurinn er stærri. Fulltrúar bandaríska ríkisins segja að þóknunin sé réttlætanleg sé horft til hlutverks Trumps við að halda TikTok úti í Bandaríkjunum ásamt því að koma að viðræðum við Kína og bregðast við áhyggjum eftirlitsaðila, t.d. vegna þátta er varðar þjóðaröryggi.