Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hættuástandi lýst yfir vegna eldsneytismengunar í ánni Dnister

Read Full Article →

Stjórnvöld í Moldóvu hafa lýst yfir 15 daga hættuástandi á vatnasvæðinu í og við ána Dnister, sem í Moldóvu heitir Nistru, vegna eldsneytismengunar. Talið er að eldsneyti hafi lekið í ána þegar Rússar gerðu árásir á Dnister-vatnsaflsvirkjunina í Úkraínu 7. mars. Stjórnvöld í Úkraínu greindu frá menguninni þremur dögum síðar þegar hennar varð vart nærri þorpinu Lyadova í Úkraínu. Mengunin barst með ánni til Moldóvu. Stjórnvöld þar í landi hafa komið upp hreinsibúnaði og gefið út viðvaranir til íbúa um að fylgja leiðbeiningum stjórnvalda á meðan hættuástandið varir. Ekki má drekka, elda eða nota vatn úr ánni fyrr en hættunni hefur verið aflýst. Ekki er vitað hversu mikið eldsneyti fór í ána. Úkraínsk stjórnvöld hafa sagt að mengunin sé umtalsverða. Moldóvar hafa óskað eftir aðstoð Evrópusambandsins til að takast á við hana. Stjórnvöld í Úkraínu og Moldóvu skilgreina ána Dnister sem mikilvægt vatnsból. Eldsneytismengunin ógni lífríki í ánni. Umhverfismálaráðherra Moldóvu, Gheorghe Hajder, hefur sagt Rússa eina bera ábyrgð á menguninni.

Share this article