Stjórnendur helstu flugfélaga Bandaríkjanna, þar á meðal Delta Air Lines, American Airlines og Southwest Airlines, hafa kallað eftir því að bandarísk stjórnvöld tryggi launagreiðslur til flugumferðastjóra og öryggisvarða flugvalla. Þetta kemur fram á vef WSJ en þúsundir alríkisstarfsmanna hafa unnið launalaust frá því í febrúar þegar lokað var fyrir fjármögnun til innanríkisstofnana. Lokun þessara ríkisstofnana hefur valdið löngum biðröðum á bandarískum flugvöllum á sama tíma og margir Bandaríkjamenn eru á leið í vorfrí. Bandarísk flugfélög hafa jafnframt búist við metfjölda farþega, eða 171 milljón, á komandi ferðatímabili. Sjá einnig Delta spáir 20% hagnaðaraukningu á árinu Langar raðir hafa myndast við öryggiseftirlit margra flugvalla og hafa valdið því að fjölmargir farþegar hafa misst af flugi sínu. Hátt í 300 öryggisstarfsmenn TSA hafa einnig sagt upp störfum á undanförnum vikum. Fjármagn til ríkisstofnana hefur tafist vegna krafna frá þingmönnum Demókrataflokksins um að setja takmarkanir á starfsemi útlendingaeftirlitsins. Demókratar stöðvuðuð frumvarp um fjárveitingu til DHS í síðustu viku eftir að Repúblikanar gerðu slíkt hið sama varðandi frumvarp sem átti að fjármagna nokkrar innanríkisstofnanir, þar á meðal TSA en ekki ICE.