Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

36 þúsund hraktir frá heimilum sínum

Read Full Article →

Höfundar nýrrar skýrslu á vegum Sameinuðu þjóðanna lýsa áhyggjum af því að örlögum Palestínumanna sem hafa hrakist frá heimilum sínum á Vesturbakkanum megi lýsa sem þjóðernishreinsunum. Þeir vísa til þess að á tólf mánuðum, til loka október í fyrra, hafi 36 þúsund Palestínumenn verið hraktir af heimilum sínum til að rýma fyrir byggðum landtökumanna. Samkvæmt skýrslunni voru stofnaðar 84 slíkar byggðir á tólf mánaða tímabilinu. „Brottflutningur meira en 36 þúsund Palestínumanna á hinum hertekna Vesturbakka felur í sér fjöldabrottvísun Palestínumanna á skala sem ekki eru fordæmi fyrir,“ segir í skýrslunni og er þar tekið fram að með þessu sé brotið gegn alþjóðlegum mannúðarlögum. Skýrsluhöfundar segja að ísraelsk stjórnvöld virðist beita sér fyrir því að flytja fólk með valdi frá heimilum sínum fyrir fullt og allt, sem geti fallið undir þjóðernishreinsanir.

Share this article