Rannsókn á banaslysi á Miklubraut í Reykjavík í febrúar miðar vel, að sögn lögreglu, og vísbendingar eru um að það megi rekja til hraðaksturs. Enn er beðið eftir niðurstöðu bíltæknirannsóknar auk annarra rannsóknargagna. „Það má búast við einhverjum mánuðum í það. Bíltæknirannsókn tekur tíma, henni er ekki aflokið. Það er bara beðið eftir gögnum til að geta klárað rannsóknina hjá okkur,“ segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn í umferðadeild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Rætt hafi verið við öll vitni. „Það er allt sem bendir til þess, í frumdrögum skýrslunnar, að hér sé um hraðakstur að ræða, miðað við aðstæður.“ Tveir sautján ára drengir voru í bílnum, sem hafnaði á stólpa við Miklubraut. Drengurinn sem sat í farþegasætinu lést. Ökumaðurinn slasaðist töluvert og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild til aðhlynningar en útskrifaður innan nokkurra daga. Lögreglan lokaði Miklubraut í gær til að gera viðnámsrannsókn á malbikinu. Við það voru notuð mælitæki frá Isavia. Árni segir lokanir líkt og í gær vera fylgifisk rannsókna á umferðaslysum. „Það getur svarað því hvernig aðstæður voru á vettvangi og hefur líka með framhald rannsóknar að gera. Ástand vegar, ástand ökutækis, þetta eru allt hlutir sem lögreglan rannsakar, ástand ökumanns líka, það er rannsakað. Þannig að þetta er bara hluti af heildarrannsókn.“