Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hækka um 5% í að­draganda upp­gjörs

Read Full Article →

Hluta­bréfa­verð líftækni­lyfjafélagsins Al­vot­ech hækkaði um 5% í 144 milljón króna við­skiptum í dag. Von er á árs­upp­gjöri frá félaginu á morgun en gengi þess hefur lækkað um tæp 26% það sem af er ári. Við­skipta­blaðið greindi frá því í síðustu viku að skort­stöður með bréf félagsins jukust í lok febrúar. Sam­kvæmt ný­birtum tölum Nas­daq sem miða við stöðuna 27. febrúar 2026 voru 2,96 milljónir hluta­bréfa að skort­seldar, saman­borið við 2,50 milljónir tveimur vikum fyrr, 13. febrúar. Skort­staðan jókst því um um 460 þúsund bréf, eða rúm 18% á milli mánaða. Svo virðist því að fjár­festar er­lendis séu að taka skort­selja á meðan inn­lendir fjár­festar hafa trú á hækkun eftir upp­gjörið. Dagsloka­gengi Al­vot­ech var 470 krónur á hlut. Sam­hliða hækkun Al­vot­ech fór gengi Ocu­lis upp um rúm 2% í lítilli veltu. Hluta­bréfa­verð félagsins lokaði í 3.330 krónum en gengi augn­lyfja­fyrir­tækisins hefur hækkað um tæp 30% það sem af er ári. Fjár­festingafélagið Skel lækkaði um rúm 2% í við­skiptum dagsins en einungis ein 16 millón króna við­skipti voru með bréf félagsins. Dagsloka­gengi Skeljar var 16,3 krónur á hlut sem er um 4% hærra en í byrjun árs. Gengi JBT Marel lækkaði um 3,5% í lítill veltu og var dagsloka­gengið 17.550 krónur. Hluta­bréfa­verð málm­leitarfélagsins Amaroq minerals lækkaði um 3% í við­skiptum dagsins. Dagsloka­gengi Amaroq var 175 krónur en gengi félagsins hefur lækkað um 15% síðastliðinn mánuð. Þá lækkaði gengi Icelandair um 1,5% í 150 milljón króna við­skiptum en hluta­bréfa­verð félagsins rauk upp um 12% í gær. Hægt er að lesa um­fjöllun Við­skipta­blaðsins um áhrif hækkandi olíu­verðs á Icelandair hér. Úr­vals­vísi­talan lækkaði um 0,37% og var heildar­velta á markaði 3,5 milljarðar. Sjá einnig Trygginga­rekstur batnar en tap á Al­vot­ech vegur á móti

Share this article