Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stefnir í öngþveiti að óbreyttu

  • What: Traffic changes on Suðurlandsbraut
  • Impact: Local drivers affected
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 18.3.2026 | 6:00 Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Á Suðurlandsbraut stefnir í umferðaröngþveiti vegna borgarlínu. mbl.is/Karítas Ólafur E. Jóhannsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Borgarlínan Þarf að afturkalla skipulagið Leggja til breytingar á Suðurlandsbraut Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða Einbreiðar akreinar á Suðurlandsbraut » Fleiri tengdar fréttir Áætlað er að raunhæf afkastageta Suðurlandsbrautar sé að hámarki um 900 bílar á klukkustund á hverja akrein og er þá tekið tillit til tafa á umferð vegna umferðarljósa sem á götunni eru. Tvær akreinar eru í hvora átt, þannig að afköstin geta mest orðið 3.600 bílar á klukkustund. Með því að fækka akreinum um tvær og lækka hámarkshraða, eins og umdeild deiliskipulagstillaga Reykjavíkurborgar mælir fyrir um, yrði raunhæf afkastageta Suðurlandsbrautar að hámarki 1.600 bílar á klukkustund, eða innan við helmingur þess sem nú er. Þetta má lesa út úr athugasemdum T.ark arkitektastofu um deiliskipulagstillöguna sem skilað hefur verið inn í skipulagsgátt Reykjavíkurborgar. Þetta álit er í ágætu samræmi við umsögn fasteignaeigenda við Suðurlandsbraut sem greint var frá í Morgunblaðinu í gær, en þar kom m.a. fram að fyrirhuguð lagning borgarlínu um Suðurlandsbraut myndi leiða til stórfelldrar skerðingar á umferðarflæði um götuna. Í athugasemdum arkitektastofunnar er þeirri spurningu velt upp hvort nægilegt samgöngumat hafi farið fram í deiliskipulagstillögunni, hvort forsendur um afkastagetu og umferðardreifingu standist og hvort útfærsla breytinganna sem til stendur að gera á Suðurlandsbraut sé í samræmi við meðalhóf, raunhæfar spár og hagsmuni þeirra sem svæðið noti daglega. Einnig hvort framkvæmd og áfangaskipting verkefnisins séu útfærðar með nægilega skýrum hætti. „Ekki liggur fyrir, á grundvelli fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi, hvort sérstakt samgöngumat hafi verið unnið vegna þeirra breytinga sem þar eru lagðar til. Hér með er óskað eftir að slíkt mat verði lagt fram sem hluti af gögnum málsins, eða að öðrum kosti að settur verði fram skýr og efnislegur rökstuðningur fyrir því hvers vegna ekki var talið nauðsynlegt að vinna það,“ segir í áliti T.ark. Segir að sú ósk byggist m.a. á því að fyrirhugaðar breytingar á Suðurlandsbraut kunni að hafa neikvæð áhrif á umferðaröryggi, einkum ef bílaumferð muni í auknum mæli dreifast um aðrar götur en hún gerir nú. Fyrirhugaðar breytingar á akreinum, gatnamótum og aðkomu að lóðum geti haft áhrif langt út fyrir hið afmarkaða skipulagssvæði, bæði á umferðarflæði og dreifingu umferðar um nærliggjandi götur. Þá segir að Suðurlandsbraut sé ein af stærri samgönguæðum borgarinnar og þegar sé umtalsverð umferð um svæðið. Fyrirhugaðar breytingar á akreinum, gatnamótum og aðkomu að lóðum geti haft áhrif langt út fyrir hið afmarkaða skipulagssvæði, bæði á umferðarflæði og dreifingu umferðar um nærliggjandi götur. „Af þeim sökum teljum við ríka ástæðu til að leggja fram sérstakt samgöngumat eða rökstyðja með mjög skýrum hætti hvers vegna slíkt mat hafi ekki verið talið nauðsynlegt,“ segir T.ark. Í umsögn fasteignaeigenda við Suðurlandsbraut, sem drepið er á hér að framan og fjallað var um í Morgunblaðinu í gær, segir að samkvæmt deiliskipulagstillögunni sé ætlunin að borgarlínan verði miðjusett á Suðurlandsbrautinni og heildarbreidd göturýmisins sem henni er ætlað að fara um sé sjö metrar. Þá verði beggja vegna svokölluð svigrúm, þ.e. gróðurbelti beggja vegna borgarlínunnar, víðast þriggja metra breið en fjögurra metra við stoppistöðvarnar. Þannig taki borgarlínan ein 15 metra af Suðurlandsbraut á breiddina. Handan svigrúmanna verði ein akrein fyrir bíla í hvora átt, hvor um sig þrír og hálfur metri á breidd. Þá er og gert ráð fyrir hjólastígum og göngustígum, sem hvorir verða þrír metrar á breiddina. Alls sé því fyrirhugað að taka 14 metra í ný samgöngumannvirki sunnan við Suðurlandsbraut sem skerða muni bílastæði fyrir framan húsin sem við brautina standa um nær helming. Ekki sé annað að skilja en að fara eigi í allar framkvæmdirnar í einu á þeim kafla Suðurlandsbrautar sem undir sé hverju sinni sem þýddi í raun að götunni væri lokað. „Lokun eins hluta götunnar felur í sér gríðarlega skerðingu aðkomu að þeim hluta hennar sem ekki yrði lokaður. Áætlanir virðast því standa til þess að Suðurlandsbraut verði lokað eða aðgangur að henni verði skertur verulega ekki skemur en í fimm ár,“ segir í umsögn fasteignaeigendanna. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Borgarlínan Þarf að afturkalla skipulagið Leggja til breytingar á Suðurlandsbraut Hraðvagnakerfi hagkvæmari kostur Framkvæmdin kostar 1,2 milljarða Einbreiðar akreinar á Suðurlandsbraut » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Gul viðvörun á Vestfjörðum með sunnan hríð Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Nemendur taka betur í Laxness Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Forsendur ekki til staðar hér á landi Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Mest lesið Í gær Í vikunni „Stærsta bylting sem við höfum séð“ „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Fjórir fá fimmtíu milljónir Arndís Bára fær ár til viðbótar Rífa gömlu brúna Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Leita fimmtu og síðustu byssunnar Stefán leiðir í Fjarðabyggð Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Þjófnaður og líkamsárás á heilbrigðisstofnun Gul viðvörun á Vestfjörðum með sunnan hríð Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Nemendur taka betur í Laxness Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Svona á að styrkja þjónustu við börnin Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Nemendur taka betur í Laxness Mest lesið Í gær Í vikunni „Stærsta bylting sem við höfum séð“ „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Fjórir fá fimmtíu milljónir Arndís Bára fær ár til viðbótar Rífa gömlu brúna Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Ekki víst að greinin yrði virkjuð þrátt fyrir árás Leita fimmtu og síðustu byssunnar Stefán leiðir í Fjarðabyggð Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“

Share this article