Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Frumvarpið hjálpar ekki til

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.3.2026 | 12:47 | Uppfært 13:16 Frumvarpið hjálpar ekki til Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu „Mjög skrýtið ef við værum öll sammála“ Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ Grafalvarleg staðan heimagert vandamál » Fleiri tengdar fréttir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri telur launavísitölufrumvarp ríkisstjórnarinnar ekki hjálpa þeirri stöðu sem upp er komin í ríkisfjármálum Í morgun tilkynnti peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að hún hafi ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 7,50%. Frétt af mbl.is Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Flóðgáttirnar opnist Hvað þarf eiginlega að gerast núna til þess að við komumst út úr þessum ógöngum? „Það eru kannski svona nokkrir hlutir. Það sem við höfum náttúrulega áhyggjur af er að nú er verðbólga komin upp um 0,2 prósentustig og það eru áhyggjur af því að hún rísi hærra. Þá höfum við áhyggjur af því að það leiði til þess að það bara opnist allar flóðgáttir, að það verði byrjað að hækka verð á vöru og þjónustu bara út um allt kerfið. Þannig að það skiptir mjög miklu að það gerist ekki. Síðan er bara mjög mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins ræði þessa stöðu með svona lausnamiðuðum hætti,“ segir Ásgeir. „Ef það er að skapa óvissu og hækka verðbólguvæntingar að kjarasamningum verði sagt upp í haust þá er það að fara að hafa mjög neikvæð áhrif. Það er að valda þá mögulega hækkun verðbólguvæntinga og að við förum að hækka vexti. Þannig að það verður mjög mikilvægt að heyra frá þeim hvort þeir ætli sér að taka á þessu með skynsamlegum hætti. Og sérstaklega í ljósi þess að staðan er meðal annars komin upp vegna þess að launin hækkuðu meira heldur en var gefið upp í þessum stóru kjarasamningum.“ Hann bætir við að verðbólgan í landinu hafi ekki komið niður á kaupmætti fólks heldur hafi kaupmáttur íslensku þjóðarinnar aukist verulega. „Þannig að það er engin kaupmáttarkrísa í gangi.“ Frétt af mbl.is „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Hefur auðvitað áhrif Í gær lauk umræðu á Alþingi um frumvarp ríkisstjórnarinnar þar sem lagt er til að bætur almannatrygginga verði tengdar launavísitölu og er viðbúið að atkvæði verði greidd um það síðar í vikunni. Skýtur það ekki dálítið skökku við að löggjafinn sé að afgreiða svona frumvarp frá sér á sama tíma og þjóðfélagið er í þessum kröggum? „Þetta hjálpar ekki til, nei, og hefur auðvitað áhrif á það hvernig ríkissjóðurinn er metinn,“ segir Ásgeir. Ytri þættir munu hafa áhrif Stríðið sem nú geisar í Mið-Austurlöndum hefur haft mikil áhrif á alþjóðamarkaði og er viðbúið að það muni valda áframhaldandi verðbólgu á heimsvísu næstu mánuði. Hefurðu áhyggjur af því að þessir ytri þættir sem við höfum ekki stjórn á eigi eftir að gera okkur skráveifu í þessum aðstæðum? „Já, ég held það. Það sem við erum búin að sjá núna er í rauninni gríðarlega mikil aukning kaupmáttar og bætt lífskjör hjá meginhluta þjóðarinnar. Þessi kaupmáttur er auðvitað að einhverjum hluta byggður á hagstæðum ytri aðstæðum, til dæmis að við höfum áfram séð vöxt í ferðaþjónustu þrátt fyrir hærri launakostnað,“ segir Ásgeir. „Í enda hvers dags þá er það þannig að lífskjör í þessu landi mótast af því hvernig okkur heppnast að flytja út og hvernig viðskipti ganga við umheiminn. Þannig að allt bakslag í því mun hafa áhrif á lífskjör þjóðarinnar.“ Kennt í grunnnámskeiðum í hagfræði Spurður hvaða væntingar hann hafi til fjármálaáætlunar fjármálaráðherra og hvað þurfi til til þess að auka trúverðugleika á ríkisfjármálunum segir Ásgeir: „Það eru náttúrulega margir fletir úr ríkisfjármálum og afgangur af ríkisfjármálum er bara einn af þeim og alls ekki endilega sá mikilvægasti. Náttúrulega skiptir máli hvernig ríkið er fjármagnað. Það liggur fyrir til dæmis hækkun vörugjalda til þess að fjármagna ríkið var ekki endilega mjög góð hugmynd, svona eftir á að hyggja. Það skiptir líka máli hvort að ríkið sé að stækka eða ekki. Vegna þess að ef þú skattleggur og eyðir peningunum í ríkisútgjöld, jafnvel þó að það sé ekki halli, þá örvar það kerfið. Þetta er bara eitthvað sem er kennt í grunnnámskeiðum í hagfræði. Þannig að ég bara vona það að það sé hugsað um alla þessa fleti þegar það er hugað að ríkisfjármálum“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu „Mjög skrýtið ef við værum öll sammála“ Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ Grafalvarleg staðan heimagert vandamál » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Selenskí boðar hörgul á flugskeytum Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu Arnar valdi Aron og Gylfa í landsliðshópinn Átta gild framboð í stjórn Íslandsbanka Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vörpuðu öflugum sprengjum nærri Hormússundi Stýrivextir hækkaðir um 0,25 prósentustig Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Seðlabankinn hafi misst tökin Ísaksskóli á leið í Kópavog Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Sænskur ríkisborgari tekinn af lífi í Íran Selenskí boðar hörgul á flugskeytum Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu Arnar valdi Aron og Gylfa í landsliðshópinn Átta gild framboð í stjórn Íslandsbanka Umræðan „Skjólið“ í ESB Hlustum á lögregluna Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stórsýning í Laugardalshöll að hefjast Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Misvísandi hagvísar vandi Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Seðlabankinn hafi misst tökin Ísaksskóli á leið í Kópavog Leikskólastarfsmaður grunaður um kynferðisbrot Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ „99,9 prósent líkur á að kjarasamningar losni“ Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Borga ekki umferðarsektir

Share this article