Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Landhelgisgæslan kölluð til vegna slasaðrar konu

Read Full Article →

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna konu sem slasaðist á Landmannaleið á Suðurlandi rétt fyrir klukkan tvö. Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, segir að björgunarsveitir á svæðinu hafi einnig verið kallaðar til. Þegar fyrstu viðbragðsaðilar hafi mætt á svæðið hafi verið talin þörf á að kalla til þyrlu gæslunnar vegna sjúkraflutninga. Frekari upplýsingar um meiðsl konunnar og líðan hennar liggja ekki fyrir að svo stöddu segir Ásgeir. Þyrla Landhelgisgæslunnar.Heilbrigðisráðuneytið

Share this article