Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bylting í upplýsingagjöf fyrir blinda og sjónskerta

Read Full Article →

Bylting hefur orðið í upplýsingagjöf til blindra og sjónskertra í almenningssamgöngum með sérstökum NaviLens-kóðum sem er verið að koma fyrir á stoppistöðvum Strætó. Með notkun kóðanna í sérstöku smáforriti geta blindir og sjónskertir sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma Strætó. NaviLens-kóðar virka á svipaðan hátt og QR-kóðar. Auk blindra og sjónskertra nýtist lausnin þeim sem tala ekki íslensku, þar sem smáforritið styður yfir þrjátíu tungumál. Fólk með lestrarerfiðleika getur einnig nýtt sér það þar sem upplýsingarnar eru lesnar upphátt í appinu. Með því að skanna kóða á strætóskýlum er hægt að fá upplýsingar um staðsetningu biðstöðvar, hvaða leiðir stoppa þar og hve langt er í næsta vagn í rauntíma.

Share this article