Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Holtavörðuheiði lokuð frá miðnætti og ófært um Öxnadalsheiði

Read Full Article →

Holtavörðuheiði, Súðavíkurhlíð og Raknadalshlíð verður lokað seint í kvöld. Öxnadalsheiði verður ófær í nótt vegna veðurs og verður að öllum líkindum lokað klukkan 6:00 í fyrramálið, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar. Raknadalshlíð verður lokað klukkan 23:00 og Holtavörðuheiði og Súðavíkurhlíð á miðnætti. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og búið er að gefa út gular viðvaranir vegna illviðris víða um landið næstu daga. Vegagerðin varar við mögulegri snjóflóðahættu á Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarmúla síðar í kvöld. Víða er snjóþekja og hálka á vegum. Gular viðvaranir vegna sunnan storms og talsverðrar úrkomu verða í gildi víða um landið næstu daga, fyrst á norðvestanverðu landinu. Á morgun verða viðvaranir í gildi um nær allt land. Talsverð ofankoma og skafrenningur hefur verið á Tröllaskaga og Vestfjörðum undanfarna daga í norðlægum áttum og hafa nokkur snjóflóð fallið, meðal annars á vegi. Hægt er að fylgjast með færð á vegum á Umferðin.is. Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article