Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandair og FÍA ná saman um starfslokarétt

Read Full Article →

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) og Icelandair náð saman í deilum um rétt flugmanna til starfsloka, samkvæmt frétt FF7 . Framkvæmdastjóri FÍA, segir að hefðbundin kjarasamningsgerð muni því hefjast aftur á ný. „FÍA og Icelandair hafa náð samkomulagi sín á milli varðandi þann ágreining sem stöðvað hefur frekari kjaraviðræður,“ segir Lára Sif Christiansen, framkvæmdastjóri FÍA, í svari til FF7. „FÍA fagnar því að hægt sé að horfa fram á veginn en samkomulaginu er ætlað að eyða óvissu og skapa traust á milli aðila sem er mikilvægur þáttur í því að hægt sé að setjast að nýju við samningaborðið.“ Kjarasamningar flugmanna frá árinu 2020 hafa verið lausir í rúma fimm mánuði eða síðan í lok september. Sjá einnig Siglir Icelandair inn í háannatíma án kjara­samnings? Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, hafði lýst því í fréttabréfi stéttarfélagsins sem birt var á dögunum að viðræður hafi helst strandað á rétti til starfsloka, sem FÍA og Icelandair deildu um fyrir Félagsdómi. Hann sagði að ef aðilar nái saman um þann þátt þá geti kjaraviðræðurnar gengið hratt fyrir sig. Sjá einnig Viðræður strandi á starfslokarétti FÍA höfðaði mál gegn Icelandair fyrir hönd níu flugmanna, sem hugðust nýta sér rétt til starfsloka við sextugt eftir 25 ára starf hjá flugfélaginu. Málið var kært til Félagsdóms. Í úrskurði dómsins var málinu vísaði því frá, þar sem dómurinn taldi þau ákvæði, sem kröfur flugmannanna voru reistar á ekki, hluta af kjarasamningi. Í téðu fréttabréfi kom fram að síðasti formlegi samningafundur milli FÍA og Icelandair hafi verið haldinn 29. desember sl. Nokkrir óformlegir fundir hafi þó verið haldnir síðan þá.

Share this article