Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hætta við stækkun vegna frumvarps

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 17:30 Hætta við stækkun vegna frumvarps Sjávarafurðir eru um þriðjungur flutningsvara BB og sona. Hér er fiski landað á Rifi sem fluttur er í vinnslu í Stykkishólmi og síðan áfram suður til Reykjavíkur. Ljósmynd/BB og synir Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Verði frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra, um afnám línuívilnunar og skel- og rækjubóta, að lögum mun það ekki aðeins hafa áhrif á fiskvinnslur og útgerðir. Keðjuverkandi áhrif munu bitna á fjölda fyrirtækja sem eru í samstarfi við eða þjónusta sjávarútveginn. Þetta segir Hafþór Benediktsson, annar eigenda BB og sona, landflutningafyrirtækis í Stykkishólmi. Stór hluti af starfsemi fyrirtækisins veltur á flutningum sjávarafurða fyrir fyrirtæki eins og Þórsnes, fiskvinnslu í Stykkishólmi, en það sér einnig um að flytja vörur og aðföng fyrir búðir á svæðinu. Frétt af mbl.is Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið „Það verður bara lokað“ „Þetta yrði reiðarslag fyrir okkur. Við flytjum allt fyrir Þórsnes. Bara frá áramótum held ég að við séum búnir að landa um 1.400 tonnum. Þetta er stærsti hlutinn af vöruflutningunum,“ segir Hafþór í samtali við 200 mílur. Spurður hvað samdráttur hjá Þórsnesi myndi þýða fyrir BB og syni stendur ekki á svörum hjá Hafþóri. „Það verður enginn samdráttur, það verður bara lokað. Það er bara þangað sem þetta stefnir.“ BB og synir sinna ekki aðeins flutningi sjávarafurða frá Þórsnesi til Reykjavíkur heldur flytur fyrirtækið fisk víðs vegar af landinu til vinnslu hjá Þórsnesi. Töluvert stór hluti starfseminnar er því undir en Hafþór segir að um þriðjung hennar megi rekja beint til verkefna fyrir Þórsnes. Starfsemi BB og sona hefur blómstrað undanfarið og stendur hún undir allt að 24 störfum í Stykkishólmi, bæði heilsársstörfum og verktakavinnu. Fyrirtækið hugðist stækka við sig og hafði sótt um lóð á svæðinu en Hafþór segir að þau hafi afturkallað umsóknina í ljósi nýrra fregna. „Þetta breytir öllu fyrir framtíðina,“ segir hann. Ef fyrirtækið missir þau verkefni sem starfsemi Þórsness hefur veitt því mun það eiga erfitt uppdráttar. „Í staðinn fyrir að vera að senda kannski fjóra eða fimm bíla á dag til Reykjavíkur, þá væri nóg fyrir okkur að senda einn kannski annan hvern dag,“ segir Hafþór. „Um leið og fiskurinn fer ekki lengur til Reykjavíkur þurfum við að hækka gjöld á vöruflutningana til baka um helming ef það á að halda þeim áfram. Þetta styður hvert við annað.“ Hann segir að ef allt fari á versta veg muni það kalla á mikla uppstokkun verkefna. „Við höfum bara verulegar áhyggjur af stöðunni,“ segir Hafþór að endingu. Stykkishólmur verður fyrir skelli ef frumvarpið nær fram að ganga en um 6 til 12% af útsvarstekjum sveitarfélagsins koma í gegnum fiskvinnsluna Þórsnes. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Búið að skera niður í ekki neitt Framkvæmdastjóri Þórsness er Eggert Halldórsson og er ekki laust við að hann andvarpi þegar blaðamaður slær á þráðinn til hans. Hann segir frumvarpið vera enn eina vörðuna á vegferð sem kippi fótum undan litlum sjávarútvegsfyrirtækjum. „Skel- og rækjubætur voru minnkaðar um 35% af Bjarkeyju Olsen. Fyrir fjórum árum voru þetta þúsund tonn en í tíð Bjarkeyjar fór það niður í 655 tonn. Síðan tekur Eyjólfur við og hann sker þetta um helming niður í eitthvað um 320 tonn,“ segir hann. Frétt af mbl.is Enn eitt högg fyrir litlar byggðir „Ég las einhvers staðar í greinargerð að áhrifin af þessari breytingu yrðu óveruleg. Kannski er hægt að reyna að færa rök fyrir því af því að það er þegar búið að skera þetta niður í ekki neitt.“ Í greinargerð frumvarpsins er tekið fram að þær forsendur sem lágu til grundvallar skel- og rækjubóta þegar verulegur samdráttur varð í skel- og rækjuveiðum undir lok síðustu aldar séu ekki lengur fyrir hendi. „Þegar skelin hrundi þótti ástæða til að bæta okkur það upp,“ segir Eggert inntur eftir viðbrögðum. „Við erum enn þá ekki að veiða skel, það hefur ekkert breyst.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Mótmæla frumvarpinu harðlega Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Þrisvar landað fullfermi á nokkrum dögum Heilsársstörfum fórnað Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gagnrýnir samkeppnislög og kolefnisgjöld Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið „Þetta er sukk og spilling“ Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Gagnrýnir framkvæmd úttektar „Þetta er sukk og spilling“ Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fleira áhugavert Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Íranir sagðir hafa hæft bandaríska orrustuþotu Aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði Lögreglukona sakfelld í héraði Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 19.3.26 714,41 kr/kg Þorskur, slægður 19.3.26 758,58 kr/kg Ýsa, óslægð 19.3.26 482,44 kr/kg Ýsa, slægð 19.3.26 465,35 kr/kg Ufsi, óslægður 19.3.26 314,96 kr/kg Ufsi, slægður 19.3.26 385,73 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 19.3.26 264,29 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 19.3.26 Fanney EA 48 Línutrekt Þorskur 2.481 kg Ýsa 330 kg Steinbítur 272 kg Hlýri 115 kg Ufsi 10 kg Samtals 3.208 kg 19.3.26 Séra Árni GK 135 Handfæri Þorskur 1.487 kg Samtals 1.487 kg 19.3.26 Breki VE 61 Botnvarpa Arnarfjarðarskel 25.687 kg Karfi 6.459 kg Þorskur 2.335 kg Langa 286 kg Samtals 34.767 kg 19.3.26 Skinney SF 20 Botnvarpa Þorskur 25.411 kg Ufsi 20.546 kg Ýsa 12.059 kg Skarkoli 4.956 kg Langa 1.943 kg Steinbítur 1.662 kg Sandkoli 377 kg Þykkvalúra 155 kg Karfi 119 kg Skötuselur 94 kg Keila 21 kg Grásleppa 18 kg Hlýri 4 kg Samtals 67.365 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Nýstofnað fyrirtæki á sviði sjávarútvegs Mótmæla frumvarpinu harðlega Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Þrisvar landað fullfermi á nokkrum dögum Heilsársstörfum fórnað Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gagnrýnir samkeppnislög og kolefnisgjöld Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið „Þetta er sukk og spilling“ Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Gagnrýnir framkvæmd úttektar „Þetta er sukk og spilling“ Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Fleira áhugavert Aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði Íranir sagðir hafa hæft bandaríska orrustuþotu Furðulegt að hlusta á skammir Daði vitnaði í Eisenhower Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 19.3.26 714,41 kr/kg Þorskur, slægður 19.3.26 758,58 kr/kg Ýsa, óslægð 19.3.26 482,44 kr/kg Ýsa, slægð 19.3.26 465,35 kr/kg Ufsi, óslægður 19.3.26 314,96 kr/kg Ufsi, slægður 19.3.26 385,73 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 19.3.26 264,29 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 19.3.26 Fanney EA 48 Línutrekt Þorskur 2.481 kg Ýsa 330 kg Steinbítur 272 kg Hlýri 115 kg Ufsi 10 kg Samtals 3.208 kg 19.3.26 Séra Árni GK 135 Handfæri Þorskur 1.487 kg Samtals 1.487 kg 19.3.26 Breki VE 61 Botnvarpa Arnarfjarðarskel 25.687 kg Karfi 6.459 kg Þorskur 2.335 kg Langa 286 kg Samtals 34.767 kg 19.3.26 Skinney SF 20 Botnvarpa Þorskur 25.411 kg Ufsi 20.546 kg Ýsa 12.059 kg Skarkoli 4.956 kg Langa 1.943 kg Steinbítur 1.662 kg Sandkoli 377 kg Þykkvalúra 155 kg Karfi 119 kg Skötuselur 94 kg Keila 21 kg Grásleppa 18 kg Hlýri 4 kg Samtals 67.365 kg Skoða allar landanir »

Share this article