Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fengu ekki sæti á eigin mynd

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 22:26 Fengu ekki sæti á eigin mynd Q&A-liðurinn svokallaði eftir frumsýningu. F.v.: Þýski leikstjórinn Hilke Rönnfeldt stýrði umræðum, Birgit Guðjónsdóttir, Ingvar Þórðarson, Mika Kaurismäki og Ragnar Axelsson. Ljósmynd/Micha Carter Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég var að koma til Íslands, ég hafði ekki tíma til að vera lengur,“ segir Ingvar Þórðarson framleiðandi heimildarmyndarinnar Fugla og manna sem verið hefur til umfjöllunar hér í blaðinu í tvígang síðan í desember en hefur nú verið sýnd í þrígang á heimildarmyndahátíðinni CPH:DOX í Kaupmannahöfn, einni þeirri stærstu í heiminum á þeim vettvangi. Þaðan var Ingvar einmitt að koma og sagði Morgunblaðinu af förinni en hann leikstýrði myndinni við þriðja mann, ásamt Finnanum Mika Kaurismäki, ákaflega virtum leikstjóra í sínu heimalandi og víðar, og Ragnari Axelssyni sem getið hefur sér góðan orðstír fyrir ljósmyndir sínar um áratuga skeið. Birgit Guðjónsdóttir er tökumaður myndarinnar. Svo efnistök Fugla og manna séu stuttlega rifjuð upp fyrir lesendum dvöldu Ingvar og samstarfsfólk hans langdvölum í eyðifirðinum Loðmundarfirði á Austurlandi, goðsagnakenndum og einangruðum, og festu þar líf hjónanna Ólafs Aðalsteinssonar og Jóhönnu Óladóttur æðarbænda á filmu sem hafa sinnt fuglunum þar af alúð í rúma tvo áratugi – lífið í sinni hreinustu og ómenguðustu birtingarmynd. Pétur Ásgeirsson, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, lét sig ekki vanta á frumsýninguna á CPH:DOX. Ljósmynd/Micha Carter Uppselt á allar sýningar Sóttu þau fjögur, sem áður er getið, kvikmyndahátíðina þar sem áhorfendur klöppuðu mynd og aðstandendum hennar lof í lófa. „Við fengum ekki einu sinni sæti sjálf,“ segir Ingvar hlæjandi, slík var aðsóknin á frumsýningu myndarinnar á hátíðinni. „Það var uppselt á allar sýningarnar tveimur vikum áður,“ segir Ingvar og bætir því við að fyrstu sýningu hafi fylgt dagskrárliður sem kallast Q&A þar sem aðstandendur mynda sitja fyrir svörum á sviði og rigndi spurningum yfir íslensk-finnska fereykið sem gerði sitt besta til að svala forvitni áhorfenda eftir sýningu myndarinnar. „Við fundum fyrir gríðarlegum áhuga fólks. Þarna voru til dæmis tveir sálfræðingar, annar íslenskur, hinn tékkneskur, og þeir nefndu að þeir vildu nota myndina sem þerapíu fyrir skjólstæðinga sína. Þá sagði kona í salnum okkur frá því að hún hefði orðið hálfdöpur þegar myndin var búin þar sem hún vildi vera áfram í þessum heimi,“ segir leikstjórinn stoltur og lái honum hver sem vill. Kærkomin og auðmelt Þess má geta að Fuglar og menn hlutu mjög jákvæða gagnrýni á vef danska menningarvefritsins POV International þar sem gagnrýnandi skrifaði að tilfinning hans væri að heimurinn hefði stækkað miðað við upplifun hans áður en hann sá myndina. „Myndin sýnir landslagið á fallegan hátt og ástríðu og skapgerð þeirra sem koma við sögu [...] Í henni má einnig lesa ótrúlega hlýju og blíðu á milli línanna og eins á milli fólksins,“ skrifar rýnir POV og starfsbróðir hans hjá danska Naturmagasinet skrifar: „ Fuglar og menn er hljóðlát mynd með ljúfum takti sem er vel þess virði að sjá.“ Á kvikmyndaspjallinu Letterboxd skrifar áhorfandi á CPH:DOX að myndin sé kærkomin og auðmelt en um leið þýðingarmikil mynd um mjög hlýjan og sérstakan mann sem sinni 12.000 fuglum. Áhorfendur voru af fjölda þjóðerna og aðspurður segir Ingvar stemmninguna hafa verið gríðargóða í salnum. Heimildarmyndaúrvalið á hátíðinni er hið fjölbreytilegasta, til dæmis hafi þau fjórmenningarnir séð mynd sem fjallaði um blindu tónlistarhjónin Amadou og Mariam frá Malí svo eitthvað sé nefnt. Hin fjögur fræknu, staðarhaldarar í Loðmundarfirði. F.v.: Albert Haukur Gunnarsson, Ólafur Aðalsteinsson, Jóhanna Óladóttir og Ragna Valdimarsdóttir. Ljósmynd/RAX Líf án stöðugs tækniáreitis Fuglar og menn keppir að sögn Ingvars um NORDIC:DOX-verðlaunin auk verðlauna þar sem áhorfendur velja verðlaunahafana. Lét einn áhorfandi myndarinnar þau orð falla að myndin væri ein fallegasta náttúrulífsmynd sem hann hefði séð, einlæg saga um fólk, börn og dýr og tengslin þar á milli. Annar sagði verkið fanga líf án stöðugs tækniáreitis, í því væru börn og fullorðnir raunverulega til staðar í náttúrunni sem gæfi myndinni hlýju, heiðarleika og dýpt auk þess sem myndin fengi áhorfandann til að staldra við og hugsa. Þess má geta að á hverju ári berast umsóknir um sýningar um 5.000 heimildarmynda á CPH:DOX en af þeim eru aðeins um fimm prósent valin til sýningar og segir Ingvar þá staðreynd að Fuglar og menn hafi verið valin inn á hátíðina undirstrika sterka stöðu myndarinnar á alþjóðavettvangi enda ótölulegur grúi fólks sem stundar fuglaskoðun um allan heim eða sýnir fuglum og lifnaðarháttum þeirra áhuga með öðrum hætti. CPH:DOX aðeins byrjunarpunktur „Hátíðin dregur að sér um og yfir 20.000 lykilaðila úr kvikmyndaiðnaðinum – framleiðendur, kaupendur, dreifingaraðila og fjölmiðla – auk tugþúsunda áhorfenda sem gerir hana að einstökum vettvangi fyrir alþjóðlega dreifingu og sýnileika,“ segir Ingvar og bætir því við að auk lykilaðilanna 20.000 sæki 120.000 áhorfendur hátíðina sem þetta árið stendur frá 11. til 22. mars. Sem dæmi nefnir hann aðspurður að fulltrúar vísindaritsins National Geographic hafi verið á hátíðinni auk breska ríkisútvarpsins BBC og streymisrisans Netflix en hátíðin í Kaupmannahöfn er aðeins byrjunarpunktur mikillar heimsreisu Fugla og manna um fjölda annarra hátíða. Persónur og leikendur í Fuglum og mönnum eru af ýmsum stærðum og gerðum. Ljósmynd/RAX Eftir frumsýningar taka markaðsöflin völdin á kvikmyndahátíðum, þannig ganga kaupin fyrir sig á eyrinni að sögn Ingvars. „Markaðurinn byrjaði í gær [á mánudaginn] og þá taka kaupendurnir að semja,“ segir Ingvar en þar eru komnir þeir 20.000 lykilaðilar sem hann nefndi hér framar. Þetta eru fulltrúar sjónvarpsstöðva og annarra kvikmyndahátíða heimsins svo eitthvað sé nefnt en vitanlega eru þar fleiri kaupendur um hituna. „Nú erum við búin að frumsýna á A-hátíð í Evrópu og þá tekur við að velja A-hátíðir í Asíu og Norður-Ameríku,“ segir Ingvar frá, „þetta er ekki þannig að maður byrji neðst og fari upp heldur byrjum við á toppnum með þessari hátíð og förum svo niður, þannig virkar þetta. Svona mynd fer á heimildarmyndahátíðir en svo eru líka náttúrulífsmyndahátíðir um allan heim og svo að lokum eru það menntastofnanir sem kaupa svona myndir, háskólar og aðrir aðilar,“ segir Ingvar Þórðarson, einn leikstjóra Fugla og manna , af óskabyrjun í kóngsins Kaupmannahöfn. Hér geta áhugasamir sem ekki voru á CPH:DOX séð að minnsta kosti stiklu úr myndinni. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fengu ekki sæti á eigin mynd Ljóstrar upp leyndarmálinu á bak við 23 ára hjónaband Erfitt kvöld fyrir Íslendingana „Af hverju sögðu þið mér ekki frá Pearl Harbour?“ „Við viljum miða okkur við svona lið“ Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Reyna að ná á Vegagerðina vegna vatnselgs „Hverju er hægt að treysta?“ Hegseth: Engin ákveðin tímaáætlun liggur fyrir Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Sigríður telur að sér vegið Gular viðvaranir á öllu landinu Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Fengu ekki sæti á eigin mynd Ljóstrar upp leyndarmálinu á bak við 23 ára hjónaband Erfitt kvöld fyrir Íslendingana „Af hverju sögðu þið mér ekki frá Pearl Harbour?“ „Við viljum miða okkur við svona lið“ Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Furðulegt að hlusta á skammir Æxlin bráðnuðu í burt Daði vitnaði í Eisenhower Vegagerðin mætt með dælubíl Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Sigríður telur að sér vegið Gular viðvaranir á öllu landinu Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting

Share this article