Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

NASA vonast til að leggja í ferð umhverfis tunglið snemma í apríl

  • What: NASA plans to send astronauts around the Moon in April
  • Impact: Part of the Artemis 2 mission, involving three U.S. astronauts and one Canadian
Read Full Article →

Bandaríska geimferðastofnunin NASA vonast til að geta sent mannað geimfar umhverfis tunglið snemma í apríl. Tæknileg vandkvæði með skotflaugina hafa tafið ferðalagið talsvert. Viðgerð er lokið og tæknimenn NASA hófu í gær að flytja risastóra flaugina og Orion-geimfarið sjálft ofurhægt að skotpallinum á Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída. Þá hefst lokaundirbúningur og prófanir á flauginni fyrir ferðina sem gæti hafist svo snemma sem 1. apríl. Reynist öll kerfi flaugarinnar virka sem skyldi leggur áhöfn Artemis 2, þrír Bandaríkjamenn og Kanadamaður, upp í um það bil tíu daga ferð umhverfis tunglið og lengra út í geim en nokkur mannvera hefur ferðast hingað til. Til stóð að leggja í hann snemma í mars en alvarleg bilun í áfyllingarbúnaði fyrir fljótandi helíum kom í veg fyrir það. Því var flaugin flutt aftur inn í bygginguna þar sem hún var smíðuð, til yfirferðar og viðgerðar. Bjartsýni ríkir á ný í herbúðum NASA að allt sé til reiðu fyrir fyrstu ferðina að tunglinu um hálfrar aldar skeið. Áhöfnin fór í sóttkví í Houston á miðvikudag til undirbúnings ferðinni sem litið er á sem sögulegt skref í geimferðum. NASA vonast til að Artemis 2 ryðji brautina fyrir Artemis 3-leiðangurinn sem ætlað er að lenda á tunglinu árið 2028 fyrsta sinni síðan 1972 en viðurkennir jafnframt að það séu býsna háleit markmið.

Share this article