Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Þrír fluttir á slysadeild eftir sprengingu

This article describes a physical industrial explosion at a feed mixing plant in Reykjavík, not a software vulnerability or cyber threat. The incident resulted in structural damage, three hospitalizations, and a significant emergency response from police and fire services. No technical details regarding a digital attack vector, CVSS score, or software versions are provided.
Read Full Article →

Þrír voru fluttir á sjúkrahús eftir sprengingu í atvinnuhúsnæði í Korngörðum í Reykjavík í morgun. Fjöldi fólks var í og við húsið, sjúkraflutningamenn skoðuðu hvort það fólk hefði orðið fyrir meiðslum og liðsinnti eftir því sem þurfa þótti. Sprengingin varð um klukkan hálf átta í morgun. Fjölmennt lið slökkviliðs og lögreglu var sent á staðinn til að bregðast við. „Það sem við vitum núna er að það varð sprenging í húsnæði Fóðurblöndunnar. Það er stór hurð hérna á húsinu og maður sér að klæðningin á húsinu er farin af á stórum kafla,“ sagði Haukur Holm fréttamaður í útvarpsfréttum klukkan níu. Rætt var við hann á vettvangi. Illa gekk að fá upplýsingar framan af þar sem lögregla hélt fjölmiðlum langt frá vettvangi. Verulegar skemmdir urðu á turni húss Fóðurblöndunnar, sagði Haukur í útvarpsfréttum. Þá var enn mikill viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs en starfi slökkviliðs var við það að ljúka. Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sagði upp úr klukkan átta að slökkviliðsmenn væru að ná yfirsýn á vettvangi og safna saman fólki sem hefði verið að vinna í húsnæðinu. Þá hafði hann ekki staðfestar upplýsingar um slys á fólki en sagði ljóst að einhverjir hefðu slasast. Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og stöðvarstjóri á stöð 1 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði upp úr klukkan átta að vinnuslys hefði orðið og að viðbragðsaðilar væru á vettvangi. Hann sagði að töluvert viðbragð væri í gangi. Lögreglan sendi frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu klukkan hálf níu: „Vinnuslys varð í Reykjavík í morgun þegar sprenging varð í húsi í Korngörðum, en tilkynning um málið barst lögreglu rétt fyrir klukkan hálfátta. Viðbragðsaðilar héldu strax á vettvang en ljóst er að um alvarlegan atburð er að ræða. Það eru eindregin tilmæli frá lögreglu að fólk haldi sig fjarri staðnum, bæði til að trufla ekki störf viðbragðsaðila og eins til að tryggja greiða aðkomu þeirra til og frá vettvangi.“ Fréttin hefur verið uppfærð.

Share this article