Innlent | mbl | 20.3.2026 | 11:45 Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Þyrluflugmaður flýgur með hjálp nætursjónauka. Mynd úr safni. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Veður Icelandair aflýsir öllu flugi í dag Öllu millilandaflugi aflýst þar til síðdegis Holtavörðuheiði enn lokuð Stormur með dimmum éljum Illviðrið heldur áfram: Holtavörðuheiði lokað » Fleiri tengdar fréttir Þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í allt að 50 hnúta vindi og éljagangi yfir að Vestfjörðum í nótt til að sækja alvarlega veikan sjúkling. Á sama tíma fylgdi björgunarsveit sjúkrabíl yfir Kleifaheiði frá Tálknafirði að Patreksfirði í aftakaveðri, þar sem hætta var á krapaflóðum. Blakkur fylgdi sjúkrabíl Beiðni um aðstoð barst björgunarsveitinni Blakki á Patreksfirði um klukkan tvö í nótt. Sjúklingur var þá á Tálknafirði og þurfti að komast undir læknishendur við erfiðar aðstæður, en Veðurstofan hafði m.a. varað við hættu á krapaflóðum á svæðinu. Fljótlega varð ljóst að flytja þyrfti sjúklinginn alla leið til Reykjavíkur. Sjúkrabíll lagði af stað frá Patreksfirði með fylgd björgunarsveitarinnar yfir Kleifaheiði. Frétt af mbl.is Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Útkall barst klukkan þrjú Rúmlega þrjú um nóttina var óskað eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar. Áhöfn TF Grófar var kölluð út en ljóst var að sjúkraflugvél kæmist ekki á leiðarenda vegna veðurs. „Við þessar aðstæður er flugið alltaf krefjandi. Það er aldrei tekin nein óþarfa áhætta en það var mikilvægt að koma sjúklingnum í bæinn,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Björgunarsveitamenn komu á vettvang á Barðaströnd um klukkan 5 í nótt. Ljósmynd/Landhelgisgæslan Stefnt að Barðaströnd Upphaflega stóð til að lenda á Patreksfirði en fljótlega þurfti að breyta áætlun. Þyrlunni var beint á Barðaströnd þar sem lendingarskilyrði reyndust hagstæðari þó að aðstæður væru áfram erfiðar. „Þeir voru að fljúga í 50 hnúta vindi,“ segir Ásgeir, sem jafngildir um 26 metrum á sekúndu. Hann segir vind og éljagang hafa gert erfitt fyrir, sérstaklega á það við um flug inn firði og því var annar lendingarstaður en Patreksfjörður valinn. „Þyrlan lenti á Barðaströnd um klukkan fimm, þar sem sjúklingurinn var fluttur um borð. Þaðan var haldið til Reykjavíkur og lent við Landspítala klukkan 06:28 í morgun,“ segir Ásgeir. Farið var með sjúklinginn í sjúkraflugi til Reykjavíkur. Gekk vel Björgunarsveitarmenn í Blakki og sjúkraliðar voru hins vegar komnir til síns heima um klukkan sex í morgun. „Flugið gekk mjög vel þegar á allt er litið,“ segir Ásgeir. Ekki liggja fyrir upplýsingar um líðan sjúklingsins. Tengdar fréttir Veður Icelandair aflýsir öllu flugi í dag Öllu millilandaflugi aflýst þar til síðdegis Holtavörðuheiði enn lokuð Stormur með dimmum éljum Illviðrið heldur áfram: Holtavörðuheiði lokað » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Biobú hækkar verð um 1% „Við erum rétt að byrja“ Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Ekkert pláss fyrir Trent þrátt fyrir meiðsli og stærri hóp Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Reykjavík þarf nýja samgöngustefnu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eru að leggja Íran í rúst: Veit ekki hver stjórnar Sex ríki vilja tryggja siglingar um Hormússund Stormur með dimmum éljum Vegagerðin mætt með dælubíl Mest lesið Í gær Í vikunni Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Leiguverð þarf að hækka töluvert Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Stormur með dimmum éljum Illviðrið heldur áfram: Holtavörðuheiði lokað Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Flugferðum til og frá Evrópu aflýst Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Nýjast á mbl.is » Biobú hækkar verð um 1% „Við erum rétt að byrja“ Flugu í fimmtíu hnútum vegna veikinda á Vestfjörðum Ekkert pláss fyrir Trent þrátt fyrir meiðsli og stærri hóp Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Umræðan Fíknisjúkir í forgangi Reykjavík þarf nýja samgöngustefnu Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Náðu ekki að sinna eftirliti á staðnum vegna álags Fimm ár liðin frá fyrsta gosinu í um 800 ár Holtavörðuheiði enn lokuð Söguleg árás Ísraela á Kaspíahafi Mest lesið Í gær Í vikunni Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Leiguverð þarf að hækka töluvert Landhelgisgæslan kölluð út vegna umferðarslyss Tveir fluttir með þyrlunni eftir slysið Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Stormur með dimmum éljum Illviðrið heldur áfram: Holtavörðuheiði lokað Leikskólarnir kyndi undir skjánotkuninni Flugferðum til og frá Evrópu aflýst Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Ítrekaður vatnselgur í nýlegum undirgöngum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Lögreglukona sakfelld í héraði Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Grófu skurði til að verja innviði við Reynisfjöru Grunsamlegir tölvupóstar á ferð Icelandair aflýsir tólf flugferðum Sigríður telur að sér vegið Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild