Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ragna sett yfir fangelsismálin

Read Full Article →

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að flytja Rögnu Bjarnadóttur úr embætti skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar. Flutningurinn tekur gildi 15. maí. Ragna var skrifstofustjóri almanna- og réttaröryggis 2017 til 2025 og hefur verið skrifstofustjóri alþjóðamála frá því á síðasta ári. Undir fyrri skrifstofuna féll fullnusta refsinga, löggæsla, ákæruvald, aðgerðir gegn brotastarfsemi og almannavarnir. Útlendingamál og landamæri heyra undir alþjóðamálaskrifstofuna auk aðgerða gegn brotastarfsemi. Ragna tekur við forstjórastöðunni af Birgi Jónassyni sem gegndi því í fjarveru Páls Winkels sem fór í leyfi frá störfum 2024 og var skipaður ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu í síðasta mánuði. Ragna starfaði áður sem ákærandi hjá embætti ríkissaksóknara og lögreglustjóranum á höfuðborgarsvæðinu, hún var einnig lögfræðingur hjá Mannréttindadómstóli Evrópu í Strassborg og hjá Umboðsmanni Alþingis.

Share this article