Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Telja að bíl hafi verið beitt sem vopni í tilraun til manndráps í bílakjallara

Read Full Article →

Talið er að bíl hafi verið beitt sem vopni í alvarlegri líkamsárás í bílakjallara við Höfðatorg í Reykjavík aðfaranótt þriðjudags. Árásin er rannsökuð sem tilraun til manndráps og rannsóknin er umfangsmikil. 12 rannsóknarlögreglumenn kembdu bílakjallarann í gærkvöldi og lögðu hald á hluti sem tengjast málinu. Íslendingur sem slasaðist alvarlega í árásinni hefur verið útskrifaður af gjörgæslu. Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við fréttastofu. Áttundi maðurinn var handtekinn vegna árásarinnar í dag. Sjö voru handteknir á þriðjudag en tveimur sleppt úr haldi. Einn situr í gæsluvarðhaldi fram á miðvikudag en fjórum öðrum var sleppt úr gæsluvarðhaldi í dag. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á gæsluvarðhald á þeim sem handtekinn var í dag, segir Ævar Pálmi. Hann segir til rannsóknar hvort og hvaða vopn voru notuð við árásina. Talið er að vopnum hafi verið beitt, og að hversdagslegum hlutum, eins og bifreið, hafi verið beitt sem vopni. Allir handteknu eru erlendir ríkisborgarar með lítil tengsl við landið, að sögn Ævars. Einn hinna þriggja sem urðu fyrir árásinni er Íslendingur. Hann var fluttur á gjörgæsludeild Landspítala eftir árásina, en hefur verið útskrifaður þaðan. Hinir slösuðust minna.

Share this article