Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sekt SKE veldur milljarða tapi

Read Full Article →

Samstæða Samskipa tapaði 18,6 milljónum evra, eða sem nemur 2,8 milljörðum króna, á árinu 2024. Tapið skýrist að stærstum hluta af 2,4 milljarða sekt Samkeppniseftirlitsins. Eiginfjárhlutfall helmingaðist úr 41% í 20% milli ára. Tekjur samstæðunnar dróst saman um 3,9% milli ára og námu 193 milljónum evra eða um 28,8 milljörðum króna á árinu 2024. Rekstrarkostnaður fyrr afskriftir (EBITDA) fór úr 4,7 milljónum evra í 267 þúsund evrur, eða um 40 milljónir króna milli áranna 2023 og 2024. Félagið var rekið með tæplega 2,3 milljóna evra, eða um 340 milljóna króna, rekstrartapi (EBIT) árið 2024. Í skýrslu stjórnar í ársreikningi félagsins segir að magn í innanlands- og fraktflutningum hafi verið á áætlun fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins 2024 en það hafi hægt á í lok árs. Líklega nokkur ár í endanlega niðurstöðu Í ágúst 2023 lagði Samkeppniseftirlitið (SKE) á 4,2 milljarða króna stjórnvaldssekt á Samskip vegna samráðsbrota félagsins og Eimskips á árunum 2008-2013. Í mars 2025 féllst áfrýjunarnefnd samkeppnismála að hluta á rök Samskips í kæru fyrirtækisins vegna ákvörðunar SKE og lækkaði sektina niður í 2,4 milljarða króna. Sjá einnig Lækka sekt SKE á Samskip úr 4,2 í 2,4 milljarða Í september 2025 áfrýjuðu Samskip niðurstöðu kærunefndarinnar. Samkeppniseftirlitið hefur gert hið sama og krefst þess að þeim hluta úrskurðar kærunefndarinnar sem var hagstæður fyrir Samskip verði ógiltur og að upphaflegur úrskurður SKE standi. „Þetta eru nú tvö aðskilin mál þar sem aðilar undirbúa andmæli sín. Þegar því er lokið má búast við að málin verði sameinuð og rekin sem eitt dómsmál. Þetta verður langt og umfangsmikið ferli og líklegt að það taki nokkur ár að fá endanlega niðurstöðu í dómi,“ segir í ársreikningi Samskipa, sem var undirritaður 6. janúar sl. Sjá einnig Saka SKE um brot á stjórnarskrá Samkeppniseftirlitið hóf rannsókn á meintu samráði milli Samskipa og Eimskips árið 2010. Rannsóknin beindist upphaflega eingöngu að markaði fyrir landflutninga en var síðar stækkuð eftir húsleit sem fram fór hjá fyrirtækjunum í september 2013. Í júní 2021 samdi Eimskip við SKE. Sem hluti af samkomulaginu viðurkenndi fyrirtækið umfangsmikið samráð við Samskip og greiddi sekt að upphæð 1,5 milljarða króna. Sjá einnig Sögðu rang­færslurnar ó­teljandi en játuðu svo „Samskip hafa ávallt neitað sök í tengslum við meint samstarf, þar með talið ásakanir um samráð varðandi breytingar á flutningskerfum fyrirtækjanna, verðsamráð og samninga sem varða stærstu viðskiptavini þeirra.“ Eignir Samskipa námu 77,7 milljónum evra, eða um 11,2 milljörðum króna, í árslok 2024. Eigið fé samstæðunnar nam 15,5 milljónum evra, eða 2,2 milljörðum króna. Af skuldum samstæðunnar upp á 62,2 milljónir evra, eða um 9 milljarða króna, er skuldbinding vegna lögfræðimála, þ.e. vegna sektar SKE, 16,7 milljónir evra. Í ársreikningnum kemur fram að samstæðan sé í ábyrgð fyrir hluta skuldum tengdra aðila, sem námu 45,9 milljónum evra, eða um 6,6 milljörðum króna. Í árslok 2024 hafi Samskip Holding Group ekki staðist öll skilyrðin í lánaskilmálum. Eftir reikningsskiladag uppfyllti félagið þessi skilyrði fyrir árið 2024. Aðaleigendur Samskipa eru hjónin Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir sem fara með ríflega 80% hlut samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins. Lykiltölur / Samskip hf. 2024 2023 Tekjur 28.828 29.966 EBITDA 40 707 EBIT -341 338 Afkoma -2.779 241 Eignir 11.184 8.252 Eigið fé 2.230 3.418 Ársverk 442 446 - Fjárhæðir umreiknaðar úr evrum í krónur á meðalgengi hvors árs. Ólafur Orri Ólafsson, sem tók nýleag við stöðu forstjóra samsteypu Samskipa í Evrópu, var í ítarlegu viðtali í Viðskiptablaðinu í síðasta mánuði. Sjá einnig Umhverfisskattar skekkja samkeppnisstöðu

Share this article