Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Cristina Alba komst ekki áfram í 60 metrunum

Read Full Article →

Christina Alba Marcus Hafliðadóttir keppti á sínu fyrsta stórmóti í fullorðinsflokki í morgun þegar hún hljóp í undanrásum 60 metra hlaupsins á HM í frjálsum innanhúss. Christina Alba hljóp í þriðja riðli og kom í mark á 7,55 sekúndum. Þar var hún í sjöunda sæti af sjö keppendum en í heildarlistanum var hún í 48. sæti af 51 keppanda. Besti tími hennar til þessa er 7,42 sekúndur en Íslandsmetið í greininni er 7,35 sekúndur. Christina Alba keppti á sínu fyrsta stórmóti í fullorðinsflokki í morgun.RÚV Christina Alba var meðal yngstu keppenda í þessari grein á mótinu en hún er fædd 2007. Júlía Kristín Jóhannesdóttir keppir í undanrásum 60 metra grindahlaupsins á morgun. Bein útsending er frá öllum keppnishlutum mótsins.

Share this article