Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stórt skarð í hlíðinni og sjór flæddi yfir bílastæðið

Read Full Article →

Sjór hefur ítrekað flætt yfir bílastæðið við Reynisfjöru og heim að veitingaskálanum eftir gríðarmikið landrof í fjörunni. Sjórinn felldi viðvörunarskilti um koll og hreif eitt þeirra með sér á haf út. Landeigandi segir þörf á miklum framkvæmdum til að koma í veg fyrir skemmdir á bílastæðinu. „Síðasta sunnudag þá gekk mikið á, það var sunnanátt og ölduhæðin var mikil og þá brugðum við á það ráð að nota gröfur sem við eigum og mokuðum hérna skurði og þá náði maður að verja okkur svona að mestu leyti,“ segir Ólafur Steinar Björnsson, bóndi á Reyni og einn landeigenda í Reynisfjöru. Sjór hefur ítrekað flætt yfir bílastæðið við Reynisfjöru og fólk átti fótum sínum fjör að launa í stórstreymi í vikunni. Sjórinn hefur grafið stóran hluta úr hlíðinni ofan við fjöruna. „Atlantshafið hefur greiða leið orðið hér inn á planið og í áttina að veitingastaðnum. Kamburinn, fjörukamburinn er nánast allur farinn,“ segir Ólafur. „Svo þarf náttúrulega að fara í einhverjar stórtækar aðgerðir til að stoppa þetta landrof.“ „Þeir segja það elstu menn sem maður hefur talað við, þeir hafa bara aldrei upplifað annað eins og þetta, eins og er búið að vera í vetur, þessi helvítis austanátt,“ segir Ólafur. Hann segir óvíst hvort fjaran komist aftur í fyrra horf en býst þó við að einhver sandur komi til baka þegar hann snýst í vestanátt. Ný varúðarskilti eru í framleiðslu og verða líklega sett upp í næstu viku, en pallurinn sem skiltin stóðu á brotnaði undan þeim í landbrotinu. „Já, þau fóru bara. Við náðum nú að bjarga megninu af því en eitt fór nú bara í sjóinn,“ segir Ólafur.

Share this article